Stöðva afgreiðslu allra hælisumsókna Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 29. nóvember 2025 11:16 Donald Trump Bandaríkjaforseti. EPA Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa ákveðið að stöðva afgreiðslu allra hælisumsókna um óákveðinn tíma í kjölfar þess að tveir þjóðvarðliðar voru skotnir í Washington-borg.
Á miðvikudagskvöld voru tveir þjóðvarðliðar skotnir skammt frá Hvíta húsinu í miðbæ Washington D.C. Sarah Beckstrom, tuttugu ára, lést af sárum sínum en Andrew Wolfe, 24 ára, liggur enn þungt haldinn. Rahmanullah Lakanwal, 29 ára Afgani búsettur í Bandaríkjunum, er grunaður um árásina en hann liggur einnig á sjúkrahúsi eftir að hafa orðið fyrir skoti. Hann hefur verið ákærður fyrir manndráp og vopnaða líkamsárás með morðásetningi. Í kjölfar árásarinnar fór Donald Trump Bandaríkjaforseti mikinn á samfélagsmiðlum og sagðist ætla að stöðva allan aðflutning fólks frá „þriðja heims ríkjum“. Á fimmtudagsmorgun var öll afgreiðsla hælisumsókna frá Afganistan stöðvuð. BBC greindi frá í morgun að afgreiðslur allra hælisumsókna hefðu verið stöðvaðar. Haft er eftir Joseph Edlow, forstjóra útlendingastofnunar Bandaríkjanna, að afgreiðsla umsókna verði stöðvuð þar til ítarleg bakgrunnsskoðun hafi farið meðal allra hælisleitanda. Í færslu á Edlow segir hann að öryggi bandarískra þegna þurfi að vera fremst í forgangsröðuninni.
Donald Trump Hælisleitendur Bandaríkin Tengdar fréttir Tveir þjóðvarðliðar skotnir nálægt Hvíta húsinu Tveir einkennisklæddir hermenn í þjóðvarðliði Bandaríkjanna eru í lífshættu eftir að hafa verið skotnir skammt frá Hvíta húsinu í miðbæ Washington D.C. rétt fyrir klukkan 20 á íslenskum tíma. Meintur árásarmaður hefur verið handtekinn en hann er einnig særður. 26. nóvember 2025 20:00 Mest lesið Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Innlent Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Innlent Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent Friðarsamkomulag verði undirritað á morgun Erlent Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Innlent Límdu efnin á fætur sína Innlent Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Innlent Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Fleiri fréttir Friðarsamkomulag verði undirritað á morgun „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Samþykkt friðarsamkomulag liggi fyrir Dregur umdeildar skýrslur um Havana-heilkennið til baka Facebook lá niðri Kaninn pakkar saman í Evrópu Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heimsstyrjöldin Hæstiréttur bannar Alabama að taka menn af lífi með köfnunarefni Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Vilja lækka sakhæfisaldur um eitt ár í stað tveggja Aflýsir kröftugu árásunum Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Rýmdu hluta Pentagon vegna „loftgæðafráviks“ Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vesturbakkanum Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Varnarmálaráðherra Breta segir af sér Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Sjá meira
Tveir þjóðvarðliðar skotnir nálægt Hvíta húsinu Tveir einkennisklæddir hermenn í þjóðvarðliði Bandaríkjanna eru í lífshættu eftir að hafa verið skotnir skammt frá Hvíta húsinu í miðbæ Washington D.C. rétt fyrir klukkan 20 á íslenskum tíma. Meintur árásarmaður hefur verið handtekinn en hann er einnig særður. 26. nóvember 2025 20:00