Viðskipti innlent

Kallar eftir auka­fundi peninga­stefnu­nefndar

Árni Sæberg skrifar
Vilhjálmur Birgisson er formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambandsins.
Vilhjálmur Birgisson er formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambandsins. Vísir/Arnar

Formaður Starfsgreinasambandsins segir óvænta hjöðnun verðbólgu um 0,6 prósentustig milli mánaða frábær tíðindi, þrátt fyrir að hún sé til marks um það hversu mikið er að hægjast á íslensku efnahagslífi. Hann kallar skýlaust eftir því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands komi saman á aukafundi og lækki stýrivexti.

Hagstofa Íslands birti í morgun vísitölu neysluverðs fyrir nóvember, sem lækkaði milli mánaða og gerði það að verkum að verðbólga mælist nú 3,7 prósent. Hún hefur ekki verið minni síðan í desember árið 2020.

„Þetta eru frábær tíðindi, að sjá verðbólguna lækka þetta skarpt og vera komna núna niður í 3,7 prósent. Það var óvænt, ég skal fúslega viðurkenna það, en þetta sýnir hvað er að hægjast á öllu í íslensku efnahagslífi. Einu vonbrigðin sem má segja er það að Seðlabankinn hafi ekki stigið stærra skref við síðustu stýrivaxtaákvörðun,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, í samtali við Vísi.

„Aumingjalegt skref“ síðast

Þar vísar Vilhjálmur til ákvörðunar peningastefnunefndar um að lækka stýrivexti um 0,25 prósentur þann 19. nóvember síðastliðinn. Þá kallaði Vilhjálmur ákvörðunina „aumingjalegt skref í rétta átt“.

„Þá má spyrja hvort það sé ekki full þörf á að Seðlabankinn boði til aukastýrivaxtaákvörðunar, sem þeir hafa heimild til að gera, í ljósi þessa. Einvörðungu í ljósi þess að það er ekki fyrr en í febrúar sem næsta ákvörðun Seðlabankans verður. Það er alveg ljóst að það verður að auka súrefni til fyrirtækja, heimila, sveitarfélaga. Þetta eru allt aðilar sem skulda gríðarlegar upphæðir. Þannig að það skiptir miklu máli að ná niður fjármagnskostnaði heimila og fyrirtækja hér hratt og vel,“ segir hann nú. 

Áhætta Seðlabankans lítil

Vilhjálmur veltir því fyrir sér hvernig ákvörðun peningastefnunefndar hefði verið síðast ef hún hefði haft vitneskju um það að aðeins liðlega viku síðar myndi verðbólga mælast 3,7 prósent.

„Þá er þetta náttúrulega gríðarleg hvatning fyrir Seðlabankann að auka við af því að ákvörðun sem er tekin í dag hjá Seðlabankanum, hún tekur marga, marga, marga mánuði að hafa raunveruleg áhrif. Þannig að áhættan hjá Seðlabankanum væri ekki ýkjamikil.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×