Emil þurfi að líta inn á við og vinna aftur trú leikmanna Aron Guðmundsson skrifar 26. nóvember 2025 13:30 Emil Barja þjálfari Hauka er í brekku með sitt lið sem varð Íslandsmeistari á síðasta tímabili Paweł/Vísir Slæm staða ríkjandi Íslandsmeistara Hauka í Bónus deild kvenna í körfubolta var til umræðu í Körfuboltakvöldi á dögunum. Sérfræðingur þáttarins segir þjálfara liðsins, Emil Barja, þurfa að líta inn á við.
Haukar hafa ekki farið vel af stað í Bónus deildinni þetta tímabilið og nú þegar tapað fleiri leikjum í deildinni, fjórum eftir átta umferðir, heldur en allt síðasta tímabil og eru sem stendur í 7.sæti. Ingibjörg Jakobsdóttir, sérfræðingur Körfuboltakvölds, sem varð á sínum tíma sem leikmaður í tvígang Íslandsmeistari, segir vanta trú hjá leikmönnum Íslandsmeistaraliðsins. Klippa: Körfuboltakvöld: Trú skorti hjá Íslandsmeisturunum „Það gleyma ekkert allir hvernig körfubolti er spilaður. Það sem er samt mikilvægast í þessu öllu er að leikmenn trúi því sem þær eru að gera. Ef það er þreyta í mannskapnum, hvort sem umræðir hjá þjálfaranum eða leikmönnum, þá eru allir svo allir svo fljótir að missa dampinn.“ Eftir ellefu stiga tap gegn Stjörnunni í síðustu umferð lét Emil Barja, þjálfari Hauka, hafa það eftir sér að það hafi skort framtak, orku og barátta hjá sínu liði og ef að hans lið væri svona lélegt í því sem það væri að gera þyrfti kannski bara að breyta öllu. „Það þarf bara leikgleði, trú og hann (Emil) verður að finna það hjá sér og sínu liði hvernig hann getur fengið aftur trú leikmanna á sér,“ sagði Ingibjörg í Körfuboltakvöldi. „Mér finnst það vera það sem þær þurfa akkúrat núna. Því ef við lítum á leikmennina sem eru í Haukum, það væri hver sem er til í að þjálfa þetta lið. Ég held að hann þurfi að kíkja inn á við.“ Umræðuna úr Körfuboltakvöldi má sjá hér fyrir ofan en Haukar heimsækja topplið Njarðvíkur í Bónus deildinni í kvöld klukkan korter yfir sjö. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland rásinni.
Bónus-deild kvenna Haukar Körfuboltakvöld Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Einn nýliði í landsliðshópnum Baulað á LeBron og félaga en snéru taflinu við Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Sjá meira