„Nú er tími til þess að sýna að við getum gert betur“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 20. nóvember 2025 22:06 Jakob Sigurðarson vill sjá sína menn gera betur. vísir Jakob Sigurðarson, þjálfari KR í Bónus deild karla, var augljósa svekktur með 99-89 tap sinna manna gegn erkifjendunum í Val nú í kvöld. Eftir jafnar og spennandi 35 mínútur tókst Val að gera út um leikinn á stuttum kafla í fjórða leikhluta. „
Þetta er mjög súrt og alltaf vont að tapa. Mér fannst við vera að elta meirihluta fyrri hálfleiks. Við byrjum svo seinni hálfleikinn vel og vorum með ákveðinn meðbyr með okkur þá. Við komumst yfir og hefðum þá getað stjórnað leiknum aðeins betur. Þeir eru að hitta gríðarlega vel í kvöld og hluti af því er vissulega eitthvað sem við getum lagað og gert betur. Svo er það líka svoleiðis að þegar lið sem hafa að skipa góða leikmenn komast upp á bragði þá er það auðveldar fyrir þau að finna lausnir og setja niður skot“ sagði Jakob strax að leik loknum. Það mátti augljóslega sjá á bæði leikmönnum og stuðningsmönnum KR að liðið var ansi oft ósátt með dómara leiksins. Spurður út í það svarar Jakob strax að í hverjum körfuboltaleik eru vafaatriði sem ýmist falla með þér eða á móti þér. „Það er alltaf í hverjum einasta leik einhver vafaatriði og dómar sem að bæði lið eru ósátt með. Það var ekki öðruvísi í kvöld. Það er langt því frá að dómgæslan hafi stýrt leiknum eða gaf þeim einhverja yfirhönd, það voru aðrir hlutir sem að við þurfum að gera betur.“ Eftir fína byrjun í Vesturbænum hefur KR nú tapað þremur leikjum í röð og er vissulega í ákveðinni brekku. Nóg er eftir af mótinu og vissulega var frammistaða liðsins alls ekki slæm í kvöld. Þjálfarinn segir verk að vinna til að snúa þessu gegni við og sýna hvað liðið geti. „Það er klárlega ákveðið augnablik núna þar sem við þurfum að líta inn á við og verða betri sem lið og sem einstaklingar. Við erum núna að fara inn í tveggja vikna pásu með þrjú töp í röð á bakinu. Nú er það okkar að bregðast við. Þetta sýnir okkur það að við þurfum að vera betri og það sé margt sem að við þurfum að laga. Nú er tími til þess að sýna það og sýna að við getum gert betur.“
Bónus-deild karla KR Valur Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira