Ætla að keyra upp hraðann og koma sér á toppinn Valur Páll Eiríksson skrifar 20. nóvember 2025 14:02 Pétur Rúnar Birgisson segir hans menn í Tindastóli ákveðna í því að sækja sigur í kvöld. Vísir/Hulda Margrét „Það er alltaf gaman að spila svona mikilvæga leiki innan tímabilsins. Þeir eru búnir að vinna fyrstu sjö en við sex og tapað einum. Það er gaman að spila um fyrsta sætið,“ segir Pétur Rúnar Birgisson, leikmaður Tindastóls, sem sækir Grindavík heim í Bónus deild karla í körfubolta í kvöld.
Líkt og hann nefnir spila liðin um efsta sæti deildarinnar og þau hafa verið bestu lið deildarinnar það sem af er vetri. „Það eru bara sjö leikir búnir en auðvitað viljum við vera efstir en erum meira að leitast eftir því að vera efstir þegar eru búnar 22 umferðir. Við hlökkum mikið til að fara til Grindavíkur og taka þennan leik,“ segir Pétur í samtali við Vísi. „Þeir hafa sýnt að þeir eru mjög vel mannaðir og eru að gera vel, bæði varnarlega og sóknarlega. Við þurfum að finna leiðir til að brjóta þá á bak aftur,“ bætir hann við. DeAndre Kane, lykilmaður Grindavíkur, verður í leikbanni í kvöld eftir hegðun hans í leik við ÍR í síðustu viku. Ólafur Ólafsson spilaði þá lítið í þeim leik og spurning með meiðslastöðu hans. Er þetta þá ekki dauðafæri fyrir Stólana? „Jú klárlega. Það er leiðinlegra að þeir séu ekki með fullt lið. Við stefnum alltaf á sigur, sama hverjir eru á móti okkur eða með okkur. Það er bara gaman að þetta sé um fyrsta sætið þegar er liðið aðeins inn í mótið. Við gerum bara okkar sama hvort Óli Óla er með eða ekki,“ segir Pétur. „Við þurfum að halda áfram að gera okkar. Við höfum gert vel varnarlega eins og þeir. Við viljum spila hratt en þeir vilja líklega, sérstaklega varnarlega, reyna að róa leikinn. Við þurfum að frákasta vel og keyra í bakið á þeim,“ bætir hann við. Leikur Grindavíkur og Tindastóls verður sýndur beint á Sýn Sport Ísland 2 í kvöld. Skiptiborðið er á sínum stað á Sýn Sport Ísland þar sem öllum fjórum leikjum kvöldsins verður fylgt eftir samtímis í beinni útsendingu.
Tindastóll Grindavík Bónus-deild karla Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira