Hlýja og nánd heima og uppi á sviði Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 20. nóvember 2025 10:00 Helgi Björns er alltaf í banastuði á sviðinu. Aðsend „Fólk þekkir þetta fyrirkomulag og kann að meta það og við líka,“ segir Helgi Björnsson tónlistarmaður sem er á fullu að undirbúa sig fyrir stórtónleika á laugardaginn næsta. Hann rifjar upp gamla takta og býður fólki líka að horfa á tónleikana heima.
Hér má sjá Helga Björns og Kalla Selló slá á létta strengi í undirbúningnum: Klippa: Helgi Björns og Kalli Selló streyma í stuði Næstum uppselt er á tónleikana í Eldborg á laugardaginn en Helgi er að endurtaka leikinn frá því í fyrra þegar hann marg seldi upp Eldborg í tilefni af fjörutíu ára tónlistarútgáfu afmæli hans. Hægt verður að kaupa aðgang að tónleikunum á laugardaginn í streymi en nokkuð er síðan að landsmönnum gafst tækifæri á að vera „Heima með Helga“ sem sló eftirminnilega í gegn í Covid. „Hér er þó um streymi frá tónleikum með áhorfendum að ræða og landsmenn fá þannig einstakt tækifæri á að kíkja á tónleika í Eldborgarsal Hörpu, heima í stofu. Við erum að leggja áherslu á hlýju og nánd á þessum tónleikum, bæði lagalisti og hljóðfæraskipan bera þess merki,“ segir Helgi um dagskrá laugardagsins og bætir við: „Það hefur verið umræða um það að fólk saknaði okkar úr sjónvarpinu og þegar sú umræða fór að sjást í fjölmiðlum ákváðum við að láta slag standa og streyma þessum tónleikum í Eldborg. Fólk þekkir þetta fyrirkomulag og kann að meta það og við líka.“ Helgi ætlar að leyfa fólki að njóta þess að horfa á hann heima í stofu á laugardag.Aðsend Hann segir tónleikana setta upp með örlítið öðru sniði í ár. „Það verður meira áhersla á akústísk hljóðfæri og yfirbragð. Sem fyrr verður einvalalið hljóðfæraleikara með og einnig er að vænta nokkurra kunnuglegra andlita sem hafa unnið náið með mér síðustu ár.“ Hljómsveitina skipa þeir Stefán Már Magnússon kassagítar, rafgítar og sér um hljómsveitarstjórn, Matthías Stefánsson á fiðlu, mandólín og kassagítar, Ásgeir Ásgeirsson á lútur og strengjaleik, Tómas Jónsson á hljómborð, harmoniku og gítara, Einar Valur Scheving á fjölbreytt ásláttarhljóðfæri, Hrafn Thoroddsen á hljómborð og gítar, Guðmundur Óskar á bassa og söng og Ingólfur Sigurðsson á trommur. Streymið hefst kl. 21:00 laugardaginn 22. nóvember og er aðgengilegt á Sýn, Símanum og Livey.
Tónleikar á Íslandi Mest lesið Útför Björgvins Halldórssonar Lífið Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Lífið Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Lífið Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Lífið Klámhundarnir engu gleymt Gagnrýni Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Lífið Höguðu sér vel á árshátíð Haga Lífið Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Lífið Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Lífið Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Lífið Fleiri fréttir Úlfarnir rifu næstum þakið af Austurbæ Þjóðþekktir tónlistarmenn koma fram í heimahúsum Flóni og Alaska ekki lengur „bara vinir“ Námið ekki eins krefjandi og á Tene Samdi lagið meðan hún gekk í gegnum erfiða tíma Útför Björgvins Halldórssonar í beinni á Vísi og Sýn Forrest Gump rokksins allur Björk, Sigur Rós og ríflega þúsund aðrir krefjast sniðgöngu „Glowie-kaflanum í lífi mínu er lokið“ Hlustun á Bó snaraukist Milljónir í að efla tónleikastaði í miðbænum „GusGus gera sexý lög og Birnir er einfaldlega sexý beast“ „Við teljum að þetta verði sögulegir tónleikar“ Ástir og átök milli Laufeyjar og Hudsons Williams Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Laufey Lín sló í gegn á Coachella Myndaveisla: Skagarokk haldið í fyrsta skipti síðan 1994 Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Sautján þúsund miðar seldir á Kaleo Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Sex þúsund miðar seldust upp á innan við mínútu Barnsleg gleði, kynþokki og óhugnaður Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar „Þú munt verða stórkostleg söngkona“ Söguleg stund í KR heimilinu Falinn gjóður vann Músíktilraunir Segist skilin út undan vegna MAGA-tengingar sinnar Elegans og elskhugar í eftirpartýi hjá Laufeyju Óvæntustu deilur ársins: „Ég hata ekki börn“ Jay-Z breytir um nafn... aftur Sjá meira