Harpa Elín Haraldsdóttir er látin Atli Ísleifsson skrifar 4. nóvember 2025 07:59 Harpa Elín Haraldsdóttir starfaði sem forstöðumaður Kötluseturs í Vík í Mýrdal. Magnús Hlynur Harpa Elín Haraldsdóttir, forstöðumaður Kötluseturs í Vík í Mýrdal, er látin, 45 ára að aldri.
Greint er frá andlátinu í Morgunblaðinu í morgun, en hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi síðastliðin laugardag. Harpa fæddist 28. janúar 1980, dóttir Helgu Þorbergsdóttur hjúkrunarfræðings og Haralds Inga Haraldssonar myndlistarmanns. Fósturfaðir Hörpu er Sigurgeir Már Jensson, heilsugæslulæknir í Vík í Mýrdal. Í æviágripi segir að Harpa hafi alist upp í Mýrdal en síðar haldið til náms. Hún hlaut BA-gráðu í mannfræði frá Háskóla Íslands og svo meistaragráðu í alþjóðatengslum frá Institut Barcelona Estudis Internacionals. Auk þess hlaut hún diplómapróf í verkefnastjórn og fyrirtækjarekstri og leiðsögumannspróf frá Leiðsöguskóla Íslands. „Á erlendum vettvangi var Harpa meðal annars verkefnastjóri hjá Þróunarsamvinnustofnun Íslands í Níkaragva og framkvæmdastjóri GeoThermHydro í Síle. Frá í ágúst 2021 veitti hún forstöðu Kötlusetrinu í Vík, samfélagsstofnun þar sem listir, menning, náttúra og saga í Mýrdal eru umfjöllunarefni,“ segir í æviágripinu. Eftirlifandi eiginmaður Hörpu er Pablo Javier Cárcamo Maldanado frá Síle, en sonur þeirra er León Ingi, fæddur 2015.
Andlát Mýrdalshreppur Söfn Katla Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Sjá meira