Diljá stórkostleg í lokin í endurkomu í Hveragerði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. nóvember 2025 16:53 Diljá Ögn Lárusdóttir var frábær með Stjörnunni í dag. Vísir/Diego Diljá Ögn Lárusdóttir neitaði að fara ekki úr Hveragerði með öll stigin þegar Stjörnukonur unnu fjögurra stiga endurkomusigur á Hamar/Þór, 85-81, í Bónusdeild kvenna í körfubolta í dag.
Hamar/Þór þarf því að bíða lengur eftir fyrsta sigri sínum á tímabilinu en þetta var sjötta tap liðsins í röð. Stjörnukonur töpuðu fjórum fyrstu leikjum sínum en hafa síðan unnið tvo leiki í röð. Diljá var bara með níu stig eftir fyrstu þrjá leikhlutana og Stjörnukonur voru sex stigum undir, 64-56. Diljá sýndi stórkostlega frammistöðu í lokaleikhlutanum og hreinlega landaði þessum sigri með átján stiga leikhluta. Hún endaði leikinn með 27 stig. Það var samt spenna allt til loka leiksins. Gestirnir úr Garðabæ unnu Keflavík í síðustu umferð og voru fimm stigum yfir í hálfleik, 44-39. Heimakonur unnu þriðja leikhlutann 25-12 og virtust vera að fara að landa langþráðum sigri þegar Diljá tók til sinna ráða. Diljá nýtti 11 af 19 skotum sínum og var með 3 stolna og 2 stoðsendingar auk stiganna 27. Hjá Stjörnunni var Eva Wium Elíasdóttir með 15 stig, 7 fráköst og 6 stoðsendingar og Greeta Uprus skoraði 14 stig, tók 8 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Shaiquel Mcgruder lét sér nægja að skora 11 stig en tók 11 fráköst og stal 4 boltum. Jovana Markovic var öflug hjá Hamar/Þór í dag með 23 stig og 11 fráköst en Mariana Duran bauð næstum því upp á þrennu, skoraði 20 stig, tók 10 fráköst og gaf 9 stoðsendingar. Jóhanna Ýr Ágústsdóttir setti niður fimm þrista úr níu tilraunum og var með 15 stig.
Bónus-deild kvenna Hamar Þór Þorlákshöfn Stjarnan Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur – Fram 2-2 | Tíu Framarar náðu í stig Íslenski boltinn Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Enski boltinn Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Enski boltinn Uppgjörið: ÍA - KR 3-1 | Þrenna Viktors geirnegldi sæti Skagamanna í efri hlutanum Íslenski boltinn Haaland sló met Agüero Enski boltinn Allt um lokaumferðina og svona er skiptingin í Bestu deildinni Íslenski boltinn „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn Þór – FH 1-0 | Gríðarmikilvægur sex stiga sigur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Sjá meira