Diljá norskur meistari með Brann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. nóvember 2025 14:23 Það var gaman hjá Diljá Ýr Zomers og félögum í dag þegar þær tryggðu sér norska meistaratitilinn. Getty/Karl Bridgeman Íslenska landsliðskonan Diljá Ýr Zomers og liðsfélagar hennar í Brann tryggðu sér í dag norska meistaratitilinn.
Brann vann 2-1 sigur á Rosenborg á heimavelli sínum í Bergen. Brann er þar með komið með 68 stig, tíu stigum meira en Vålerenga þegar aðeins níu stig eru eftir í pottinum fyrir Sædísi Rún Heiðarsdóttur og félaga í Vålerenga. Brann fór langt með því að tryggja sér titilinn með því að vinna Vålerenga 4-2 í síðasta mánuði en Brann hefur nú unnið þrettán deildarleiki í röð. Diljá er að verða landsliðsmeistari í annað sinn á þessu almanaksári því hún vann belgíska titilinn í vor með Oud-Heverlee Leuven en missti reyndar af stórum hluta tímabilsins vegna meiðsla. Diljá var á varamannabekknum hjá Brann í dag og kom ekki við sögu. Mörk liðsins skoruðu þær Signe Gaupset á 22. mínútu og Nea Lehtola á 47. mínútu. Markið hjá Gaupset var frábært mark eftir einleik frá eigin vallarhelmingi en þetta var hennar fimmtánda mark á tímabilinu. Ine Strömstad Berre minnkaði muninn fyrir gestina í lokin og setti smá spennu í lokamínútur leiksins. Diljá er með eitt mark og tvær stoðsendingar í ellefu deildarleikjum með Brann. Hún er líka með eitt mark í bikarnum eftir að hafa komið til liðsins eftir Evrópumótið í sumar.
Norski boltinn Mest lesið Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Íslenski boltinn Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Handbolti Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist Fótbolti Glódís framlengir samninginn við Bayern Fótbolti Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Enski boltinn Kansas frá Kansas til Kansas Sport Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Fótbolti Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Enski boltinn Tryggðu þrjú lið í úrslitakeppnina Sport Fleiri fréttir Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu Arsenal - Crystal Palace | Síðasta lausa sætið í undanúrslitum „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Glódís framlengir samninginn við Bayern Chelsea setur sig í samband við Semenyo Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Hætt við að spila í Ástralíu en óvíst hvar leikurinn verður Neymar kominn á lappir og lofar að skora í úrslitaleik HM Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist „Svona lítur frábær ákvörðun út“ Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Salah færði Egyptum draumabyrjun Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Neres hetja Napoli í Sádi-Arabíu Aron Einar lagði upp dýrmætt sigurmark Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Glódís Perla veik í jólafríið en enn taplaus Glódís og Hákon best í fótboltanum á árinu Frelsaði fjárfestirinn Dani Alves gefur sjálfum sér samning Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg Mbappé breytti um fagn af góðu tilefni Sjá meira