Lögreglumenn hundfúlir með bruðl ríkislögreglustjóra Lovísa Arnardóttir skrifar 29. október 2025 09:17 Fjölnir Sæmundsson, formaður sambandsins, segir málið ekki líta vel út. Vísir/Vilhelm Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, segir fjárútlát ríkislögreglustjóra fara illa í lögreglumenn. Hann tekur undir með dómsmálaráðherra um slæma áferð á málinu. Peningum hefði betur verið varið í löggæslu og þjálfun lögreglumanna.
Fjallað hefur verið um það í vikunni að ríkislögreglustjóri greiddi ráðgjafafyrirtækinu Intra ráðgjöf 160 milljónir króna fyrir þjónustu þess á fimm árum. Meðal þess sem fyrirtækið rukkaði tugi þúsunda fyrir var að skreppa í verslanir Jysk og íhuga uppsetningu á píluspjaldi. Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri fundar með Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, dómsmálaráðherra, um málið í dag. Þorbjörg Sigríður sagði „áferðina á málinu ekki góða“ í gær. „Ég get tekið undir með dómsmálaráðherra um áferðina á málinu,“ segir Fjölnir sem var til viðtals um þetta mál í Bítinu í morgun. Þetta slái hann ekki vel og komi á óvart. Hann segir starfsmenn embættisins tilkynnt sambandinu um verktakann og að hún væri í vinnu í tengslum við „myglumálið“ en mygla kom upp í húsnæði embættisins nýlega og er það nú starfandi í gömlu húsnæði utanríkisráðuneytisins við Rauðarárstíg. Fjölnir segir síðustu ár hafa verið aðhald í lögreglu og niðurskurð. Embættið hafi beðið um aukafjárveitingu frá dómsmálaráðuneytinu til að halda námskeið fyrir sérsveitina því ekki hafi verið til peningar fyrir það. Hann segir embættið hafa farið fram á 80 milljónir til að halda námskeiðið. Auk þess hafi Sigríður Björk borið fyrir sig ráðningabann þegar hún var spurð um málið í gær. Fjölnir segir þannig hafa verið þröngt um hjá embættinu en samt hafi verið hægt að ráða þennan ráðgjafa. Gremja vegna sérfræðingaráðninga Fjölnir segir það almennt hafa skapað gremju hjá lögreglumönnum hversu margir sérfræðingar hafa verið ráðnir til embættis ríkislögreglustjóra sem ekki eru lögreglumenn. Embættið sé búið að stækka í starfsmannahaldi. „Við hefðum bara viljað að þessir peningar færu í löggæslu, í fleiri lögreglubíla. Við þurfum aukna þjálfun í tölvurannsóknum,“ segir hann og að slíkum glæpum hafi fjölgað verulega um allt land og það sé mikil þörf á að þjálfa lögreglumenn um allt land til að takast á við þá. Það hefði til dæmis verið hægt að nýta þessar 160 milljónir í það. Fjölnir segir almannavarnir einnig á verksviði ríkislögreglustjóra og það sé vel að sérfræðingar séu til dæmis ráðnir í slík verkefni en þessi ráðgjafi hafi alls ekki farið með nein slík verkefni. Hún hafi sinnt verkefnum tengdum stjórnum og svo vegna myglunnar. „Ísafjörður er búinn að flytja út af myglumálum og Suðurnes og hluti af höfuðborgarsvæðinu. Þetta er vandamál víða og ég hefði haldið að lögreglan væri með hæfa stjórnendur sem ræðu við flest verkefni.“ Hann segir málið ekki líta vel út og eins og „eitthvað klúður“. Einhver hafi hreinlega borgað reikningana án þess að skoða vel hvað væri nákvæmlega verið að rukka fyrir, eins og að rukka 36 þúsund krónur fyrir að labba í gegnum Rúmfatalagerinn. Tekist á um verkefni og fjármagn Hann segir þetta fara illa í lögreglumenn. Hann hafi fengið mikil viðbrögð frá lögreglumönnum og lögreglumönnum hjá embætti ríkislögreglustjóra. Hann segir verkefnið pólitískt að því leyti að innan lögreglu sé rætt um það hvar verkefnin eigi að vera. Ríkislögreglustjóri hafi sinnt verkefnum tengdum Grindavík en það hafi lögregluembættið á höfuðborgarsvæðinu líka gert og Lögreglan á Suðurnesjum. Það séu til dæmis deilur innan lögreglunnar um það hvar sérsveitin og fjarskiptamiðstöðin eigi að vera og landamæradeildir líka. „Það er alls konar lögreglupólitík í þessu og það er alltaf verið að takast á um verkefni og fjármál innan lögreglunnar.“ Fjölnir segir það til dæmis umræðu hvort sameina eigi öll lögregluembættin í eitt embætti. Hann fjalli um það í nýju tímariti embættisins og telur að það geti skapað hagræði. Hann segir þetta til skoðunar í dómsmálaráðuneytinu en telur að sýslumenn verði fyrst sameinaðir. Landsbyggðin óttist sameiningar og því þurfi að tryggja hvernig það sé gert en hans mat sé að lögregla á landsbyggð gæti við slíka sameiningu orðið öflugri en hún er núna. Fréttin hefur verið leiðrétt. Fyrst stóð að embætti ríkislögreglustjóra hefði farið fram á aukafjárveitingu upp á 80 milljónir frá landssambandinu fyrir sérsveitarnámskeiði en það rétta er að fjárveitingin kom frá dómsmálaráðuneytinu. Leiðrétt klukkan 10:49 þann 29.10.2025.
Lögreglan Stjórnsýsla Mygla Rekstur hins opinbera Bítið Greiðslur ríkislögreglustjóra til Intra Tengdar fréttir Reglur brotnar og þjónusta sem bjóða ætti út Stjórnsýsla ríkislögreglustjóra við kaup á þjónustu ráðgjafafyrirtækisins Intra er óeðlileg og brýtur ýmsar reglur. Þetta er mat stjórnsýslufræðings sem segir augljóst að bjóða hefði átt þjónustuna út miðað við hve háar upphæðir sé um að ræða. 28. október 2025 14:03 Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Sjá meira
Reglur brotnar og þjónusta sem bjóða ætti út Stjórnsýsla ríkislögreglustjóra við kaup á þjónustu ráðgjafafyrirtækisins Intra er óeðlileg og brýtur ýmsar reglur. Þetta er mat stjórnsýslufræðings sem segir augljóst að bjóða hefði átt þjónustuna út miðað við hve háar upphæðir sé um að ræða. 28. október 2025 14:03