Guðrún líklegust til að koma til bjargar í eyðimörk Sindri Sverrisson skrifar 23. október 2025 09:06 Það var létt yfir stelpunum okkar á æfingu á Norður-Írlandi. Fyrri leikur einvígisins er klukkan 18 á morgun. Samsett/KSÍ Guðrún Arnardóttir og Fanney Inga Birkisdóttir þykja líklegastar til að koma til bjargar ef landsliðskonur Íslands í fótbolta myndu enda í eyðimörk.
Ísland á fyrir höndum gríðarlega mikilvæga leiki við Norður-Írland, í Ballymena á morgun og á Laugardalsvelli næsta þriðjudag. Leikirnir ráða því hvort Ísland verður áfram í A-deild eða fellur í B-deild, fyrir næsta ár þegar leikið verður um sæti á HM. Leiðin á HM yrði mun greiðari í gegnum A-deildina. Þó að öllum sé ljóst hve mikilvægir þessir fyrstu leikir eftir EM í sumar eru, þá vita stelpurnar okkar að það er líka mikilvægt að hafa gaman af lífinu. Á Instagram-síðu KSÍ er skemmtilegt myndband þar sem stelpurnar svara því hvaða liðsfélaga þær myndu vilja hafa með sér í eyðimörk. View this post on Instagram A post shared by Knattspyrnusamband Íslands (@footballiceland) Katla Tryggvadóttir, Alexandra Jóhannsdóttir og Ingibjörg Sigurðardóttir voru allar sammála um að miðvörðurinn áreiðanlegi Guðrún Arnardóttir væri besti kostur. Hún myndi bjarga málum: „Ég myndi taka Guðrúnu, bara svo að ég myndi lifa af. Ég treysti ekki neinum öðrum,“ sagði Ingibjörg létt. Hildur Antonsdóttir og Fanney Inga markvörður voru einnig nefndar oftar en einu sinni og Fanney Inga hafði sömuleiðis trú á sjálfri sér: „Ég myndi taka Kötlu með mér, bara fyrir good vibes. Svo held ég að ég myndi koma okkur þaðan,“ sagði hún og glotti. Fyrri leikur Norður-Írlands og Íslands hefst klukkan 18 á morgun og seinni leikurinn er á Laugardalsvelli á þriðjudag, einnig klukkan 18.
Landslið kvenna í fótbolta Þjóðadeild kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjá meira