Rafael Leao afgreiddi Albert og félaga Siggeir Ævarsson skrifar 19. október 2025 18:17 Rafael Leao skoraði bæði mörk AC Milan í kvöld EPA/MATTEO BAZZI Topplið AC Milan í Seríu A tók á móti Alberti Guðmundssyni og félögum í Fiorentina í kvöld en Fiorentina hefur ekki farið vel af stað í deildinni og var án sigurs fyrir leik kvöldsins. Á því var engin breyting í kvöld og Fiorentina er í fallsæti eftir sjö umferðir með þrjú stig. Heimamenn voru töluvert sterkara liðið í kvöld en gestirnir komust þó yfir með marki frá Robin Gosens á 55. mínútu. Mílanómenn svöruðu með tveimur mörkum, báðum frá Rafael Leao á 63. mínútu og svo skoraði hann úr vítaspyrnu á 86. mínútu en þetta voru fyrstu tvö mörk vængmannsins portúgalska þetta tímabilið. Albert byrjaði á bekknum í kvöld en kom inn á á 70. mínútu og náði ekki að setja mark sitt á leikinn með afgerandi hætti. Ítalski boltinn
Uppgjörið: Portúgal - Ísland 26-25 | Annar eltingaleikur íslenska liðsins endar með öðru tapi Handbolti
Uppgjörið: Portúgal - Ísland 26-25 | Annar eltingaleikur íslenska liðsins endar með öðru tapi Handbolti