Lífið

Rúrik hlaut verð­laun sem rísandi stjarna ársins

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Rúrik með verðlaunagripinn á hátíðinni í vikunni.
Rúrik með verðlaunagripinn á hátíðinni í vikunni.

Þúsundþjalasmiðurinn Rúrik Gíslason hlaut verðlaunin Rísandi stjarna ársins (e. Shooting Star Actor of the Year) á verðlaunahátíðinni Vienna Awards í Vínarborg á miðvikudagskvöld. 

Vienna Awards eru alþjóðleg verðlaunahátíð þar sem einstaklingar og fyrirtæki eru heiðruð fyrir framúrskarandi hæfileika í tísku, listum og afþreyingu á alþjóðavettvangi.

Rúrik hefur vakið athygli á síðustu árum fyrir hlutverk sín í þýsku kvikmyndunum Eine Million Minuten og Wunderschöner. Hann er öllum hnútum kunnugur þegar kemur að þýsku sjónvarpi, enda sigraði hann í þáttunum Let's Dance árið 2021 og hefur auk þess komið fram í raunveruleikaþáttunum Elton 12 og The Masked Singer.

Rúrik birti færslu á Instagram þar sem hann þakkaði fyrir sig:

„Ég er enn að melta þetta. Ég er virkilega þakklátur fyrir þetta augnablik og fyrir alla þá sem hafa verið hluti af þessari vegferð hingað til, þið vitið hver þið eruð. Takk kærlega @vienna.awards fyrir þessa viðurkenningu!“


Tengdar fréttir

Rúrik mætti með kærustuna í brúð­kaupið

Rúrik Gíslason mætti með kærustu sinni Sóleyju Birnu Horcajada Guðmundsdóttur í brúðkaup hjá félaga sínum Sverri Inga Ingasyni og Hrefnu Dís Halldórsdóttur á dögunum. Þetta er fyrsta myndin sem næst af þeim opinberlega saman.

Sagði nei takk við Durex en já við Netflix

„Fyrir tíu árum hefði ég sagði að það væru engar líkur á því að ég væri hér í dag,“ segir fyrrum fótboltakappinn, leikarinn og IceGuys stjarnan Rúrik Gíslason en líf hans hefur þróast í ófyrirsjáanlegar áttir eftir að hann lagði fótboltaskóna á hilluna 32 ára gamall.

Skaust fyrr af æfingu og sótti milljónir í verðlaunafé

Rúrik Gíslason gerði sér lítið fyrir og sótti sigur í enn einum raunveruleikaþættinum í Þýskalandi sem nýverið var sýndur í sjónvarpi. Rúrik ræddi sigurinn í Brennslunni en þar kom fram að verðlaunaféið hafi ekki verið af verri endanum, um 14,7 milljónir króna, þó Rúrik hafi lítið velt sér upp úr því. Hann fer nú með aðalhlutverk í bíómynd sem situr pikkföst á toppnum í Þýskalandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.