Vilja nýja leið fyrir strætó í Fossvogi í gegnum tvo botnlanga Lovísa Arnardóttir skrifar 14. október 2025 06:45 Botnlangarnir mætast við enda Stjörnugrófar og Fossvogsbrúnar. Strætó hefur óskað eftir því að ný akstursleið verði gerð um göturnar. Hægra megin á má sjá enda Fossvogsbrúnar og vinstra megin Stjörnugrófar. Vísir/Anton Brink Strætó hefur óskað eftir því að Reykjavíkurborg og Kópavogur hefji undirbúning að byggingu strætóvegar milli Stjörnugrófar og Fossvogsbrúnar. Í minnisblaði sem var til umræðu á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í vikunni kemur fram að samhliða breytingunum þurfi að setja upp hlið til að stöðva aðra umferð og tvær nýjar stoppistöðvar, við Víkina og Fossvogsbrún.
Í minnisblaði er óskað eftir því að undirbúningur hefjist eins fljótt og auðið er þar sem breytingin muni koma til með að nýtast strax tveimur leiðum, 11 og 17. Ellefunni er ekið frá Mjódd og á Seltjarnarnes og leið 17 frá Skúlagötu í Breiðholti. Hér má sjá botnlanga Fossvogsbrúnar sem er Kópavogsmegin. Við enda götunnar er rekið sambýli.Vísir/Anton Brink Í minnisblaði segir að þegar framkvæmdir hefjist við gatnamót Bústaðavegar og Reykjanesbrautar verði strætóvegurinn enn mikilvægari og muni auðvelda hjáleiðir á framkvæmdatíma. Auk þess muni þessi nýi strætóvegur einnig nýtast akstri neyðarbíla. Þá segir í minnisblaðinu að ólíklegt sé að hægt verði í framtíðinni að vera með stoppistöðvar fyrir leið H á Reykjanesbraut. Fyrir gamalt og nýtt leiðakerfi Í minnisblaði Strætó segir að þegar nýtt leiðanet taki gildi muni strætóvegurinn verða nýttur af almennri leið H sem mun aka milli Seltjarnarness og Breiðholts um Stjörnugróf og Fossvogsbrún, sjá mynd 1. Gert er ráð fyrir að leið H muni aka á 15 mínútna tíðni á annatíma sem þýðir að fjórir vagnar munu aka um strætóveginn í hvora átt á klukkustund þegar mest er. Miðað er við að nýtt leiðanet taki gildi þegar fyrstu lotu Borgarlínu er lokið. Tillaga að hönnun vegtengingar. Sjá má götukanta og miðlína fyrir akstursleiðina. Rauða línan sýnir hvar strætisvagn myndi stoppa til að hleypa vagni út gagnstæðri átt framhjá. Efla Þá segir að strætóvegurinn muni bæta þjónustu við hverfin í kring til muna þar sem tvær nýjar stoppistöðvar bætast við, annars vegar við Víkina í Reykjavík og hins vegar við Fossvogsbrún í Kópavogi. „Byggðin í kringum Stjörnugróf og við Fossvogsbrún og Smiðjuveg mun vera í göngufjarlægð frá þessum nýju stoppistöðvum og mun þjónusta við Víkingssvæðið bætast til muna. Góð strætótenging verður á milli Víkinnar og Safamýrar sem eru þau tvö svæði sem knattspyrnufélagið Víkingur þjónar,“ segir í minnisblaðinu. Á myndinni má sjá Víkina, æfinga- og keppnissvæði Víkings. Með því að bæta við strætóleiðinni eiga að vera betri samgöngur við Safamýri en Víkingur þjónar báðum svæðum. Vísir/Anton Brink Verði hægt að uppfylla öryggisviðmið Þar er vísað í greiningu á vegum verkfræðistofunnar Eflu sem unnin var fyrir Strætó vegna breytinganna. Niðurstöður greiningar Eflu hafi verið að hægt væri að koma vegtengingunni fyrir með því að hafa einbreiða akstursleið fyrir strætisvagna á þessum kafla ásamt því að fækka um eitt bílastæði og mögulega klippa til gróður. Þrátt fyrir að vegtengingin muni þvera fjölfarinn göngu- og hjólastíg þá er niðurstaða Eflu sú að hægt sé að standa að hönnun vegtengingarinnar á þann hátt að uppfyllt séu öryggisviðmið sem koma fram í hönnunarleiðbeiningum um hjólreiðar. Yfirlitsmynd úr skýrslu Eflu sem sýnir tillögu að útfærslu vegtengingarinnar ásamt öðrum hönnunarþáttumEfla Aka á lágum hraða Í minnisblaðinu segir að í greiningu Eflu hafi verið lagt upp með að gangandi og hjólandi hafi forgang á Strætó og að sett verði upp hlið til að tryggja að önnur umferð fari ekki um strætóveginn ásamt því að tryggja að strætisvagnarnir stöðvi áður en þeir þvera göngu- og hjólaleiðina. Gert er ráð fyrir að vagnar aki á lágum umferðarhraða, um 15 kílómetra hraða á klukkustund að hámarki. Sjónvegalendir sem æskilegt er að tryggja við þverun strætisvagna yfir göngu- og hjólastíginn samkvæmt skýrslu Eflu. Efla Nauðsynlegt verði að fjarlægja tvö bílastæði við Fossvogsbrún en hægt er að bæta við einu stæði fremst á bílaplaninu í staðinn til að lágmarka fækkun bílastæða. Þá er einnig lagt til að banna bifreiðastöður við götukanta við Fossvogsbrún og Stjörnugróf. Hér má sjá hvert leið H á að vera ekið i´nýju leiðaneti Borgarlínunnar. Strætó
Skipulag Strætó Umferð Umferðaröryggi Reykjavík Kópavogur Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira