Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-1 | Evrópuvonir Blika lifa Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 5. október 2025 21:08 Kristinn Jónsson lét að sér kveða í kvöld. Vísir/Diego Breiðablik lagði Fram 3-1 í 25. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Sigurinn heldur Evrópuvonum Breiðabliks fyrir tímabilið 2026 á lífi þar sem Blikar eru nú þegar í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu.
Breiðablik mátti þola stórt tap í 1. umferð Sambandsdeildarinnar á meðan Fram vann góðan 2-0 sigur á Val í síðustu umferð Bestu deildarinnar. Það var þó ekki að sjá að þeir leikir hefðu nein áhrif á spilamennsku liðanna í kvöld. Blikar komust yfir snemma leiks þegar Kristinn Jónssón átti fyrirgjöf frá vinstri sem Kyle McLagan, miðvörður Fram, tókst að setja í eigið net án þess að Viktor Freyr Sigurðsson kæmi neinum vörnum við. Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, tvöfaldaði forystuna um miðbik fyrri hálfleiks. Boltinn hrökk fyrir hann við vítateig Fram, fyrirliðinn tók eina snertingu og skilaði boltanum svo af mikilli yfirvegun í netið. Staðan 2-0 þegar fyrri hálfleikur var rétt hálfnaður. Það stefndi í að staðan yrði 2-0 í hálfleik en upp úr bókstaflega engu minnkaði Jakob Byström muninn þegar fimm mínútur voru til loka fyrri hálfleiks. Kennie Chopart lagði boltann fyrir framherjann unga sem fann leið í gegnum vörn heimamanna og skilaði boltanum í netið. Í blálok fyrri hálfleiks bætti Kristinn Jónsson við þriðja marki Blika. Aukaspyrna hans fór þá af veggnum og í netið. Síðari hálfleikur var bragðdaufur framan af og virtust liðin búin að sætta sig við stöðuna. Á endanum hótaði Fram því að minnka muninn en það gekk ekki eftir, lokatölur 3-1. Þegar tvær umferðir eru eftir er Breiðablik í 4. sæti með 39 stig, tveimur minna en Stjarnan sem er sæti ofar. Fram er í 6. sæti með 32 stig. Atvik leiksins Það hlýtur að vera fyrsta mark leiksins. Setti ákveðinn tón í leikinn þar sem annað liðið er að eltast við Evrópu á meðan hitt er í raun bara að klára mótið. Stjörnur og skúrkar Hinn síungi Kristinn Jónsson skoraði og lagði upp í dag. Hann fær því að vera stjarnan að þessu sinni. Lítið um skúrka nema Kyle sé skúrkur fyrir að setja boltann í eigið net. Stemmning og umgjörð La-la stemmning í Kópavogi. Það er við hæfi að á sama tíma hafi fjendur þeirra í Víking tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. Umgjöriðin þó fín sem alltaf. Dómarinn Fínt bara, gott bara.
Fótbolti Íslenski boltinn Besta deild karla Breiðablik Fram Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira