Giannis ekki kominn af stað með Milwaukee Bucks Árni Jóhannsson skrifar 4. október 2025 11:47 Giannis Antetokounmpo hnykklar vöðvana eftir troðslu í leik með Milwaukee Bucks. Vísir/Getty Það eru tæpar þrjár vikur í að NBA deildin fari af stað og eru liðin í óða önn að undirbúa sig. Stórstjarnan Giannis Antetokounmpo er samt ekki farinn af stað en hann greindist með Covid-19 nýlega.
Giannis var hvergi sjáanlegur þegar Milwaukee liðið hélt hinn svokallaða fjölmiðladag, sem er upphafið að æfingabúðum liðanna, og hefur ekki hafið æfingar með liðinu. Hin þrítuga stórstjarna þurfti nefnilega að vera í sóttkví eftir að hafa greinst með Covid-19 á meðan hann hlóð batteríin í Grikklandi eftir að hafa spilað með gríska landsliðinu á Eurobasket 2025. Giannis hefur gefið í skyn að hann sé ekki nógu ánægður með það hvernig Milwaukee Bucks hafa staðið sig á leikmannamarkaðinum undanfarið og hafa spekingar vestanhafs velt því fyrir sér hvort hann hugsi sér til hreyfings. Milwaukee Bucks völdu Grikkjann með 13. valréttinum í nýliðavalinu árið 2011 og hefur Giannis spilað þar síðan. Hann tók þátt í að tryggja Bucks NBA titilinn árið 2021. Doc Rivers þjálfari Milwaukee Bucks staðfesti það við blaðamenn að Giannis væri á leiðinni til móts við liðið sem er statt í Miami. Það mun spila fyrsta leik sinn á undirbúningstímabilinu á mánudaginn næsta gegn Miami Heat.
NBA Mest lesið Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Fótbolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin Íslenski boltinn Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Íslenski boltinn FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Körfubolti Öll börn eigi að fá að vera hluti af liðinu Sport Fleiri fréttir Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Einn nýliði í landsliðshópnum Baulað á LeBron og félaga en snéru taflinu við Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Uppgjörið: Höttur - ÍR 108-96 | Heimamenn sterkari í seinni Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Sjá meira