Viðskipti innlent

Engar breytingar boðaðar á starfs­manna­fundi í morgun

Árni Sæberg skrifar
Einar Örn Ólafsson er forstjóri Play.
Einar Örn Ólafsson er forstjóri Play. Vísir/vilhelm

Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play, boðaði til starfsmannafundar í morgun þar sem hann fór yfir starfsmannamál og þær breytingar sem þegar hafa verið boðaðar á rekstri félagsins. Hann segir í sjálfu sér ekkert markvert hafa komið fram á fundinum. Aflýsing flugs til Parísar með fimmtán mínútna fyrirvara í morgun var vegna veikinda áhafnarmeðlims og tengist fundinum ekki.

Að neðan má heyra viðtal við Einar Örn Ólafsson, forstjóra Play.

Funda með ÍFF í dag

Í frétt Ríkisútvarpsins segir að Íslenska flugstéttafélagið, viðsemjandi Play, hafi sent félaginu erindi þar sem því hafi verið lýst yfir að félagið teldi Play myndu brjóta lög um réttarstöðu starfsmanna með boðuðum breytingum á rekstri Play. Play áformar að skila íslenska flugrekstrarleyfi sínu og gera út frá Möltu.

Haft er eftir Jóhanni Óskari Borgþórssyni, formanni Íslenska flugstéttafélagsins, að boðað hafi verið til fundar milli félagsins og Play og að hann sé bjartsýnn á útkomu fundarins.

Hafa haldið fjölda starfsmannafunda

Einar Örn segir í samtali við fréttastofu að boðað hafi verið til starfsmannafundar í morgun, líkt og hafi verið gert margoft í gegnum tíðina. 

„Það var í sjálfu sér ekkert markvert sem gerðist á þessum fundi. Við fórum yfir stöðuna með okkar fólki og auðvitað erum við að fjalla um þetta umbreytingarferli sem félagið er í. Við erum að draga saman seglin á Íslandi og færa starfsemina að nokkru leyti úr landi. Þetta kallar á alls konar verkefni og felur í sér alls konar áskoranir, sem eru ekki allar auðveldar og þægilegar fyrir starfsfólkið. Það var bara ástæða til að fara yfir þessi mál.“

Engar frekari uppsagnir boðaðar

Engar uppsagnir eða aðrar breytingar, sem hafi ekki áður verið kynntar, hafi verið boðaðar á fundinum. Þá sé honum ekki kunnugt um hvort eða þá hversu mörgum verði sagt upp um mánaðamótin. Síðustur tvö mánaðamót hefur alls um fimmtíu manns verið sagt upp hjá félaginu.

„Við auðvitað erum á ákveðinni vegferð, sem hefur verið farið yfir, við erum að draga úr fjölda véla sem starfa frá Íslandi og samfara því hefur verið og er enn fækkun, bæði á skrifstofu og í áhöfnum okkar. En þetta er nokkuð vel vörðuð leið og engar breytingar sem nú eru að verða á þeirri leið.“

Þá kannast Einar ekki við orðróm um að laun þess skrifstofufólks, sem mun starfa áfram á Íslandi, verði lækkuð.

Fréttin verður uppfærð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×