Quang Le stefnir Landsbankanum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 10. september 2025 22:12 Quang Le gekkst einnig undir nafninu Davíð Viðarsson. Samsett Quang Le hefur stefnt Landsbankanum þar sem að hann hefur ekki fengið að stofna til bankaviðskipta hjá bankanum frá því að hann var tekinn til rannsóknar fyrir um einu og hálfu ári síðan.
Quang Le, einnig þekktur sem Davíð Viðarsson, er grunaður um mansal, peningaþvætti og skipulagða glæpastarfsemi. Hann hefur verið til rannsóknar síðan í mars á síðasta ári en Landsbankinn sagði upp viðskiptum við hann 13. mars. Sjá nánar: Mál Quangs Le (Davíðs Viðarssonar) Í stefnu Le, sem Mbl.is hefur undir höndum og greinir frá, segir að hann hafi ekki getað þegið laun eða greiðslur í um eitt og hálft ár. Þar segir einnig að í stefnunni segi að ein ástæða bankabannsins sé kynþáttur hans, en Le er frá Víetnam. Er Landsbankinn sagði upp viðskiptum við Le tilkynntu þau hann einnig í innlend og alþjóðleg upplýsingakerfi fjármálastofnanna vegna grunsamlegrar færslu eða hegðunar stefnanda eða viðskipta. Það væri vegna þess að grunur léki á peningaþvætti eða fjármögnun hryðjuverka. Málið verður þingfest á morgun og hefur Jóni Þorvarði Sigurgeirssyni, stjórnarformanni Landsbankans, verið stefnt fyrir hönd bankans. Í stefnunni er gerð krafa um að starfsmenn bankans sem komu að ákvörðuninni gefi skýrslu fyrir dómi. Fréttin hefur verið uppfærð. Upphaflega var haft upp úr frétt Morgunblaðsins að stjórnarformaður Landsbankans gæfi skýrslu fyrir dómi en það reyndist ekki rétt.
Mál Quangs Le (Davíðs Viðarssonar) Landsbankinn Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Innlent 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Innlent Eldur í Árbænum Innlent Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Innlent Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Erlent Fleiri fréttir Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Malbika á Reykjanesbraut í kvöld 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Sjá meira