Ragna og Rögnvaldur ráðin aðstoðarrektorar Árni Sæberg skrifar 28. ágúst 2025 13:34 Frá vinstri: Ragna Benedikta Garðarsdóttir, Silja Bára R. Ómarsdóttir rektor og Rögnvaldur Jóhann Sæmundsson. Kristinn Ingvarsson Ragna Benedikta Garðarsdóttir, prófessor við Sálfræðideild, og Rögnvaldur Jóhann Sæmundsson, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild, hafa verið ráðin aðstoðarrektorar við Háskóla Íslands.
Í tilkynningu þess efnis á vef HÍ segir að Ragna verði aðstoðarrektor menntunar og starfsumhverfis og Rögnvaldur aðstoðarrektor vísinda og þverfræðileika. Tveir aðstoðarrektorar hafi verið starfandi við Háskóla Íslands frá árinu 2016 þegar breytingar voru gerðar á stjórnsýslu skólans. Aðstoðarrektorarnir gegn hlutastarfi með rannsóknaskyldu en rektor skilgreini umboð þeirra í erindisbréfi. Háskólinn verði ekki bara góður heldur frábær vinnustaður Ragna sé er prófessor í félagssálfræði við Sálfræðideild. Hún hafi lokið BA-prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 1995, MS-prófi í félagssálfræði frá London School of Economics and Political Science 1997 og doktorsprófi í sömu grein frá University of Sussex árið 2006. Ragna hafi áður stundað við rannsóknir hjá Rannsóknastofnun uppeldis- og menntamála og síðar hjá Félagsvísindastofnun samhliða stundakennslu við Háskóla Íslands. Hún hafi orðið lektor árið 2011, fengið framgang í stöðu dósents árið 2014 og í stöðu prófessors árið 2021. Undanfarin tvö ár hafu hún setið í stjórn og samninganefnd Félags prófessora við ríkisháskóla. Undir Rögnu sem aðstoðarrektor menntunar og starfsumhverfis heyri málefni kennslusviðs, bæði þau sem snúa að nemendaráðgjöf og að umbótum í kennslu. Þá muni Ragna leiða ýmsar nefndir sem lúta að ráðningum, mati á störfum, framgangi og kjaramálum og enn fremur mótun áherslna Háskóla Íslands á sviði sjálfbærni- og umhverfismála, jafnréttismála og samfélagsvirkni og þjónustu. „Með því að leggja áherslu á starfsumhverfið í starfstitli mínum viljum við stjórnendur enn fremur undirstrika að við erum að hlusta á starfsfólk og að við munum berjast fyrir því að Háskóli Íslands verði ekki bara góður heldur frábær vinnustaður. Það er í forgangi hjá mér að draga úr starfsálagi, ekki síst hjá akademísku starfsfólki en það er sá hópur sem ítrekað mælist með mesta streitu í starfi. Ég hef ákveðnar hugmyndir um hvernig megi fínstilla þau kerfi sem halda utan um okkar störf til þess að draga úr álagi en þetta verður langhlaup þar sem við munum byggja vinnu okkar á gögnum og góðu samráði,“ er haft eftir Rögnu. Þverfræðileikinn mikilvægur á umbrotatímum Rögnvaldur sé prófessor í iðnaðarverkfræði við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild. Hann hafi lokið CS-prófi í rafmagnsverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1991, MS-prófi í verkfræði frá sama skóla árið 1994 og doktorsprófi í tæknistjórnun frá Chalmers tækniháskólanum árið 2003. Rögnvaldur hafi hafið störf við Háskóla Íslands árið 2014 sem dósent og fengið framgang í stöðu prófessors árið 2019. Áður hafi hann meðal annars starfað við Háskólann í Reykjavík og þróunardeild Össurar. Samhliða starfi sínu við Háskóla Íslands hafi Rögnvaldur einnig gegnt hlutastöðu vísindamanns við Gautaborgarháskóla. Undir Rögnvald sem aðstoðarrektor vísinda og þverfræðileika heyri vísindarannsóknir, nýsköpun, stefnu- og gæðamál ásamt þverfræðileika. „Þverfræðileikinn er mikilvægur á margan hátt. Hann er sérstaklega mikilvægur á umbrotatímum þegar við þurfum að hugsa út fyrir kassann og vinna saman að því að finna ný sjónarhorn. Hann er líka mikilvægur til að tengja háskóla við atvinnulíf og samfélag vegna þess að ef vísindaþekking á að koma að notum þarf hún að blandast praktískri þekkingu af ýmsu tagi. Síðast en ekki síst er þverfræðileikinn mikilvægur fyrir forvitna stúdenta sem vilja komast að því hvernig heimurinn virkar og hvernig hægt er að bæta hann. Þess vegna höfum við áhuga á að auka veg hans við Háskóla Íslands og eitt af mínum hlutverkum er að finna leiðir til þess í samstarfi við starfsfólk og stúdenta,“ er haft eftir Rögnvaldi.
Háskólar Vistaskipti Skóla- og menntamál Mest lesið Sameinist í baráttu um að fá risabor og gangaþrennu Innlent Katrín gerir upp áföllin og tekist á um samgönguáætlun Innlent Sambandið við Rússland og siðrof í Evrópu í forgangi Erlent Hættir á Spotify: „Ég er frjáls!“ Innlent Tuttugu og fimm fórust þegar skemmtistaður brann til kaldra kola Erlent Gangi í berhögg við samninga að festa Reykjavíkurflugvöll í sessi Innlent Á fjórða tug barna drepin í drónaárás á leikskóla Erlent Réðst á starfsmenn lögreglu Innlent Hermenn reyna að ræna völdum í Benín Erlent Sonur Ölmu Möller íhugar framboð Innlent Fleiri fréttir Leggja til að lækka innviðagjaldið enn meira Katrín gerir upp áföllin og tekist á um samgönguáætlun Réðst á starfsmenn lögreglu Sameinist í baráttu um að fá risabor og gangaþrennu Gangi í berhögg við samninga að festa Reykjavíkurflugvöll í sessi Þrír handteknir fyrir hótanir og vopnalagabrot Hrossahjörð á brokki fram Álftanesveg Krefjast skýringa á boðuðum breytingum ráðherra á framhaldsskólum Sonur Ölmu Möller íhugar framboð Gefa út litlausa viðvörun Karlmaður handtekinn í tengslum við mannslát Vonast til að opna nýtt Konukot sem fyrst Ekki markmiðið að takmarka aðgengi fjölmiðla Óvænt breyting hækkaði lyfin um tugi þúsunda „Mér brá við að sjá þessa tölu“ Alltaf ljóst að Flokkur fólksins væri veiki hlekkurinn Hættir á Spotify: „Ég er frjáls!“ Reiknað með fjölmenni á jólamarkaði á Flúðum í dag Þórunn biðst afsökunar: „Bara mannleg eins og annað fólk“ Forseti Alþingis tjáir sig um ummælin umdeildu Fjárlög afgreidd fyrir hlæjandi þingsal Vakna seinast en vilja mest morgunbirtu Gripinn á 130 á 80-götu Með hamagang á hóteli og kastaði innanstokksmunum „Brast eitthvað innra með mér og ég sá að ekki var allt með felldu“ Skólp og klór frá Hveragerði gerir Ölfusingum lífið leitt MAST búið að snúa hnífnum Spennandi að sjá hvernig borgin bregst við Þakkar fyrir að hafa ekki verið búinn að rýja kindurnar „Ég vísa ekki beint í þessa skýrslu“ Sjá meira