Hlaup hafið úr Hafrafellslóni Árni Sæberg skrifar 22. ágúst 2025 12:03 Hafrafellslón er á jaðri Langjökuls. Landhelgisgæslan Jökullhlaup er hafið úr Hafrafellslóni vestan Langjökuls. Vatnsstaða lónsins er sögð virðast hærri nokkru sinni fyrr.
Í tilkynningu á vef Veðurstofunnar segir að hlaupið renni í farveg Svartár og þaðan í Hvítá í Borgarfirði. „Vatnsstaða lónsins virðist hærri en nokkru sinni fyrr og því ekki hægt að útiloka að hlaupið nú verði umfangsmeira en árið 2020,“ segir í tilkynningunni. Þar er vísað til mikils skyndiflóðs sem varð úr lóninu í ágúst árið 2020, sem olli því að Hvíta barst upp á bakka sína og talsverður laxadauði varð í kjölfarið. Veðurstofan bendir íbúum á svæðinu á að huga að mögulegum áhrifum á eignir og búfénað við bakka Hvítár. Mikil óvissa sé um þróun hlaupsins en hversu hraður rennslisvöxturinn verður ráði miklu um hámarksrennsli og útbreiðslu Þá segir að undanfarnar vikur hafi sérfræðingar Veðurstofunnar fylgst með þróun lónsins með gervitunglamyndum. Hafrafellslón sé jaðarlón og í það safnist leysingarvatn úr jöklinum að sumarlagi. Síðast hafi umtalsvert jökulhlaup orðið úr lóninu í ágúst 2020 og annað minna hlaup sumarið 2021. Uppfært klukkan 15:45: Í tilkynningu veðurstofunnar segir nú að frá því í gærkvöldi hafi vatnshæð í Hvítá ofan Húsafells hækkað, sem sé skýrt merki um að hlaupvatnið sé byrjað að berast í ánna. Að svo stöddu sé vatnshæðin enn innan þess sem mælst hefur í miklum vatnavöxtum vegna rigninga, en gera þurfi ráð fyrir því að vatnshæðin haldi áfram að hækka næstu daga.
Náttúruhamfarir Borgarbyggð Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira