Flugvél Play lenti í hagléli og þurfti að snúa við Magnús Jochum Pálsson skrifar 8. júlí 2025 10:29 Flugvél Play lenti í hagléli sem olli töluverðum skemmdum og varð til þess að snúa þurfti flugvélinni við. Play Flugvél Play, sem var í leiguflugi fyrir pólska ferðaskrifstofu, var snúið við til lendingar skömmu eftir flugtak frá Katowice í Póllandi eftir að hafa lent í hagléli sem olli töluverðum skemmdum. Birgir Olgeirsson, upplýsingafulltrúi Play, segir að ekki hafi verið nein hætta á ferðum og að vélinni hafi verið lent án vandkvæða en hún varð fyrir þó nokkrum skemmdum, sérstaklega framan á nefinu. Fréttastofa Rúv greindi fyrst frá fréttinni en þar má sjá hve miklar skemmdir urðu á flugvélinni. Flugvélin var í leiguflugi fyrir pólsku ferðaskrifstofuna SkyUp sem selur sólarlandaferðir frá Póllandi til Krítar. Áhöfnin um borð var íslensk en farþegar að mestu Pólverjar að sögn Birgis. Vélin er nú komin inn í skýli á flugvellinum í Katowice í Póllandi þar sem hún er til skoðunar og viðgerðar. Ekki liggja frekari upplýsingar fyrir um skemmdirnar, umfang þeirra eða hve langan tíma tekur að gera við hana.
Birgir Olgeirsson, upplýsingafulltrúi Play, segir að ekki hafi verið nein hætta á ferðum og að vélinni hafi verið lent án vandkvæða en hún varð fyrir þó nokkrum skemmdum, sérstaklega framan á nefinu. Fréttastofa Rúv greindi fyrst frá fréttinni en þar má sjá hve miklar skemmdir urðu á flugvélinni. Flugvélin var í leiguflugi fyrir pólsku ferðaskrifstofuna SkyUp sem selur sólarlandaferðir frá Póllandi til Krítar. Áhöfnin um borð var íslensk en farþegar að mestu Pólverjar að sögn Birgis. Vélin er nú komin inn í skýli á flugvellinum í Katowice í Póllandi þar sem hún er til skoðunar og viðgerðar. Ekki liggja frekari upplýsingar fyrir um skemmdirnar, umfang þeirra eða hve langan tíma tekur að gera við hana. Veist þú meira um málið eða ert með myndir af skemmdunum? Við tökum á móti öllu myndefni á ritstjorn@visir.is eða magnusp@syn.is.
Veist þú meira um málið eða ert með myndir af skemmdunum? Við tökum á móti öllu myndefni á ritstjorn@visir.is eða magnusp@syn.is.
Play Fréttir af flugi Pólland Samgöngur Mest lesið „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð Innlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Innlent Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Erlent Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Fleiri fréttir Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Allt hnífjafnt í nýjum þjóðarpúlsi og reynt aftur við Lagarfljót Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Bændur segja nei Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Skipar Eirík og Hildi sem landsréttardómara Landrisi í Öskju er lokið Nú má heita Hugríkur Húrinn og Aelía Rúa Ótímabært að hugsa um áhrif mögulegs verkfalls á sjúkraflug „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ „Þjóðin á rétt á að vita“ Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja Sjá meira