Varar við því að stórvirkjun í Skagafirði verði útilokuð Kristján Már Unnarsson skrifar 26. júní 2025 22:02 Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar. Sigurjón Ólason Forstjóri Landsvirkjunar gagnrýnir þau áform stjórnarflokkanna að slá virkjanir í Skagafirði út af borðinu. Talsmaður Landverndar átelur hins vegar stjórnarliðið fyrir að opna á Kjalölduveitu.
Í fréttum Sýnar mátti heyra ólík sjónarmið um orkumálin. Í nýrri tillögu meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis að flokkun fimm virkjanakosta líst forstjóra Landsvirkjunar verst á þau áform stjórnarflokkanna að setja Héraðsvötn með Skatastaðavirkjun í verndarflokk. Hugmyndin er að stöðvarhús Skatastaðavirkjunar verði grafið inn í fjallið Elliða ofan Skatastaða.Landsvirkjun „Við teljum að það sé skynsamlegt, eins og með Skatastaði, að sá kostur sé settur í biðflokk til þess að það sé skoðað betur,“ segir Hörður Arnarson. „Það er ljóst að orkuöflunarviljinn, orkuþörf samfélagsins, er mun meiri en menn töldu áður - fyrir endurnýjanlega orku. Og það er hættulegt ef við setjum tiltölulega góða kosti í verndarflokk,“ segir forstjóri Landsvirkjunar. Frárennslisgöng Skatastaðavirkjunar myndu opnast ofan Villinganess og Tyrfingsstaða, samkvæmt þessari útfærslu.Landsvirkjun Hann telur unnt í umhverfismati að sýna fram á að Skatastaðavirkjun sé ásættanleg. Auk þess segir hann virkjunina mikilvæga fyrir orkuöryggi í landinu. „Því þetta er svona eini stóri vatnsaflskosturinn sem er fyrir utan eldvirk svæði. Hún yrði þá líka eiginlega eini kosturinn sem væri í Skagafirði, sem yrði þá líka mikil lyftistöng fyrir samfélagið,“ segir Hörður. Stærstu athugasemdir Landverndar lúta að því að Kjalölduveita sé sett í biðflokk í stað verndar. Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar.Sigurjón Ólason „Og það eru ekki bara athugasemdir Landverndar heldur er þar í rauninni verið að fara aftur gegn tillögum rammaáætlunar, sem hefur ítrekað komist að sömu niðurstöðu. Sem er að þetta eigi að fara í vernd. Þannig að það finnst okkur dálítið skuggalegt,“ segir Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, og minnir á að rammaáætlun telji Kjalölduveitu vera Norðlingaölduveitu og varða Þjórsárver. Forstjóri Landsvirkjunar telur á móti jákvætt að Kjalölduveita sé ekki útilokuð. Frá Þórisvatni. Með Kjalölduveitu yrði meira af vatni Efri-Þjórsár veitt yfir í Þórisvatn til að auka orkuframleiðslu í virkjunum á Tungnaársvæðinu.Stöð 2/Arnar Halldórsson. „Kjalölduveita er hagkvæmasti kosturinn, sem hefur að okkar mati mjög lítil umhverfisáhrif. Hún er langt frá Þjórsárverum, sem er náttúrlega mjög mikilvægt að vernda. Og það er algjörlega útilokað að Kjalölduveita hafi áhrif á Þjórsárverin,“ segir Hörður. Björg Eva segir veituna einnig skaða fossa Efri-Þjórsár. „Það tekur vatnið úr einni flottustu stórfossaröð landsins, Dynk, sem Ómar Ragnarsson kom nú vel á kortið á sínum tíma,“ segir Björg Eva og nefnir einnig Gljúfurleitarfoss og Hvanngiljafoss. Fossinn Dynkur í Þjórsá.Skjáskot/Stöð 2 Landsvirkjun virðist þó hafa nóg að gera á næstu árum. „Við erum að fara af stað með nokkur öflug verkefni núna. Við erum komin af stað með Vaðölduver og erum vonandi að komast af stað með Hvammsvirkjun og stækkun Sigölduvirkjunar og Þeistareykjavirkjunar. Þannig að það má segja að við höfum ágæta verkefnastöðu til að mæta þörf svona fram til ársins 2030,“ segir Hörður. Talsmaður Landverndar segir ofboðslegan orkuþrýsting í umræðunni. „Það eru bara allsstaðar uppi alveg svakaleg plön um orkuöflun. Ég held að menn þurfi bara að flýta sér hægt og skoða þessi mál. Og þar eru vindorkuverin heldur ekki undanskilin,“ segir Björg Eva.
Vatnsaflsvirkjanir Landsvirkjun Orkumál Loftslagsmál Umhverfismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skagafjörður Tengdar fréttir Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Stjórnarmeirihlutinn á Alþingi vill að Héraðsvötn í Skagafirði verði friðuð gagnvart virkjunum og fari í verndarflokk rammaáætlunar. Þá vill meirihlutinn halda þeim möguleika opnum að Kjalölduveita neðan Þjórsárvera verði leyfð. 23. júní 2025 22:26 Nýtt framboð raforku mætir ekki aukinni eftirspurn fyrr en 2027 Nýtt framboð raforku mætir ekki aukinni eftirspurn fyrr en mögulega árið 2027. Nýtt framboð getur dugað fyrir umfangsmiklum orkuskiptaverkefnum árið 2030 ef því er ekki ráðstafað í önnur verkefni. Þetta, og meira, kemur fram í nýrri orkuspá Orkustofnunar sem gefin var út í dag. 20. mars 2024 12:01 Mest lesið Vaktin: Vopnið fundið og FBI dreifir myndum Erlent Alvarlegt atvik kom upp í Heiðarskóla Innlent Sakborningur í 28 málum sendur úr landi Innlent Tilkynningum um „spoofing“ fjölgað verulega síðustu ár Innlent „Þetta eru ekki góðar móttökur“ Innlent Hver var Charlie Kirk? Erlent Bandamaður Trumps skotinn til bana á fjölmennum viðburði Erlent Trump nýti sér morðið til frekari valdtöku Innlent Rándýrar herþotur og flugskeyti gegn ódýrum drónum Erlent Morðið á Kirk vekur upp umræðu um málfrelsi Innlent Fleiri fréttir Helgarlokanir leiði fólk til þess að nota efnin í bílakjöllurum Vinirnir vestanhafs hafi áhyggjur af stigmögnun Segir Íslendinga eiga eftir að uppgötva Grænland Samdráttur eftir fjögurra ára vaxtarskeið Samfélagslegur sparnaður vegna herferðar rúmlega 700 milljónir Morðið á Kirk vekur upp umræðu um málfrelsi Kaldavatnslaust í hluta Laugardalsins Stefán Einar og Sigmar ræða skautun í kjölfar voðaverks Fjórtán geta búist við sekt Alvarlegt atvik kom upp í Heiðarskóla „Þetta eru ekki góðar móttökur“ E.Coli staðfest í neysluvatninu á Stöðvarfirði „Froðuhagnaður“ Félagsbústaða haldi borginni á floti Launahækkanir þungur baggi á borginni Trump nýti sér morðið til frekari valdtöku Fjörugar umræður um fjárlög: Hóflegur útgjaldavöxtur, vonbrigði eða della? Fjárlögin litlaus líkt og hann sjálfur Tekist á um fjárlagafrumvarpið og morðið á Charlie Kirk Tilkynningum um „spoofing“ fjölgað verulega síðustu ár „Súrrealísk og skelfileg upplifun“ Bein útsending: Daði Már mælir fyrir fjárlögum næsta árs Ofbeldi foreldra gegn börnum jókst um nær helming 3,7 stiga skjálfti í Árnesi Ákall um íslenskukennslu: „Oft var þörf en nú er nauðsyn“ Vilja styttu af Gunnari í Gunnarsbrekku Líkamsárás og skartgripaþjófnaður Sakborningur í 28 málum sendur úr landi Kosti þrjár milljónir fyrir alþjóðlega nemendur að læra á Íslandi Quang Le stefnir Landsbankanum Fékk milljón vegna afmælis kattarins Sjá meira
Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Stjórnarmeirihlutinn á Alþingi vill að Héraðsvötn í Skagafirði verði friðuð gagnvart virkjunum og fari í verndarflokk rammaáætlunar. Þá vill meirihlutinn halda þeim möguleika opnum að Kjalölduveita neðan Þjórsárvera verði leyfð. 23. júní 2025 22:26
Nýtt framboð raforku mætir ekki aukinni eftirspurn fyrr en 2027 Nýtt framboð raforku mætir ekki aukinni eftirspurn fyrr en mögulega árið 2027. Nýtt framboð getur dugað fyrir umfangsmiklum orkuskiptaverkefnum árið 2030 ef því er ekki ráðstafað í önnur verkefni. Þetta, og meira, kemur fram í nýrri orkuspá Orkustofnunar sem gefin var út í dag. 20. mars 2024 12:01