Hafnaði öllum kröfum Ásthildar Lóu nema einni Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 26. júní 2025 12:11 Ásthildur Lóa kærði alla fréttastofu RÚV fyrir umfjöllun af máli sínu. Vísir/Samsett Ríkisútvarpið og fréttakonan Sunna Karen Sigurþórsdóttir brutu gegn siðareglum blaðamanna með umfjöllun sinni um mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra. Siðanefnd hafnaði öllum kröfum ráðherrans fyrrverandi nema einni og telur brotið ekki alvarlegt en ámælisvert þó.
Þetta kemur fram í úrskurði siðanefndar Blaðamannafélags Íslands þann 23. júní síðastliðinn. Í henni er tekin fyrir frétt sem birtist 20. mars síðastliðinn á vef Ríkisútvarpsins sem bar fyrirsögnina „Barnamálaráðherra átti barn með unglingspilti sem hún leiðbeindi,“ en var síðar var fyrirsögninni breytt í „Barnamálaráðherra átti barn með unglingspilti sem hún kynntist í trúarsöfnuði.“ Fréttin sneri að því að fyrir rúmum þremur áratugum hefði Ásthildur átt í ástarsambandi með fimmtán ára dreng. Hún var þá 22 ára gömul. Þess var getið að þau hefðu kynnst þegar hún leiddi unglingastarf í trúarsöfnuði. Í fréttinni voru reifuð ákvæði almennra hegningarlaga, svo sem að óheimilt sé að eiga samneyti með einstaklingi undir átján ára aldri ef viðkomandi er til dæmis kennari eða leiðbeinandi þess, eða þá að eiga samræði við einstakling undir átján ára aldri sé viðkomandi háður manni fjárhagslega, í atvinnu sinni eða skjólstæðingur í trúnaðarsambandi. Þann tíunda maí síðastliðinn fór Ásthildur Lóa fram á að Ríkisútvarpið leiðrétti ýmsar rangfærslur, þar á meðal „aðdróttanir um refsivert athæfi“ sem Ásthildur Lóa taldi birtast í umfjöllun Ríkisútvarpsins. Ríkisútvarpið taldi ekki tilefni til leiðréttingar. Einfaldur hugarreikningur og venjubundinn meðgöngutími mannfólks Ásthildur taldi víða pott brotinn í vinnubrögðum Ríkisútvarpsins við fréttaflutning af máli sínu. Hún taldi brotið gegn annarri og sjöttu grein siðareglna með því að segja að hún hafi átt í ástarsambandi við fimmtán ára pilt þegar hún hafi leitt unglingastarf í trúarsöfnuði á níunda áratug síðustu aldar, enda hafi þar verið rangt farið með staðreyndir. Sjá einnig: Sonurinn opnar sig um mál foreldranna „Að mati [Ásthildar Lóu] hefðu fréttamenn RÚV getað, út frá fæðingardegi sonar kæranda, reiknað út hvenær umrædd samskipti áttu sér stað, enda hefur kærandi greint svo frá að samneyti þeirra hafi ekki hafist fyrr en getnaður átti sér stað. Með „einföldum hugarreikningi, og öflun upplýsinga um venjubundinn meðgöngutíma mannfólks, hefðu fréttamenn RÚV getað fundið út að barnsfaðir [Ásthildar Lóu] var 16 ára þegar barn hans og [Ásthildar Lóu] var getið,“ segir í úrskurði siðanefndar. Þá taldi Ásthildur einnig brotið gegn siðareglum blaðamanna með því að gefa henni ekki kost á því að koma sjónarmiðum sínum á framfæri áður en fyrsta frétt af málinu birtist á vefnum. Hún sagði ljóst liggja fyrir að umfjöllun um málið hefði verið með öðrum og réttari hætti hefði henni gefist kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri fyrir fram. Framsetning RÚV ósanngjörn Ríkisútvarpið í heild sinni, fréttastofa Ríkisútvarpsins, Ari Páll Karlsson fréttamaður og Sunna Karen Sigurþórsdóttir fréttakona voru kærð fyrir siðanefndina. Hins vegar er að mati siðanefndar með öllu óljóst hvers vegna málinu sé beint að Ara Páli. Enda hafði hann enga aðkomu, hvorki beina né óbeina, að málinu. Einu afskipti Ara Páls að umfjölluninni voru þau að ljósmynd af Ásthildi Lóu sem birtist með fyrstu frétt af málinu var höfundarmerkt honum. Nefndin féllst því á kröfu hans um frávísun málsins hvað hann varðar. Siðanefnd taldi sig ekki hafa forsendur til að leggja mat á eðli sambands Ásthildar Lóu og barnsföður hennar, hvort hún hafi gegnt leiðbeinendastöðu innan safnaðarins þar sem þau kynntust, eða hvernig það samband þróaðist. Ásthildi Lóu hafi ekki tekist að hrekja fullyrðingar barnsföður hennar sem Ríkisútvarpið ræddi við við umfjöllun fréttarinnar með óvéfengjanlegum hætti heldur standi orð hennar og upplifun gegn orðum og upplifun barnsföðurins. Siðanefnd tók sérstaklega fyrir umfjöllun Ríkisútvarpsins um sjálfræðisaldur og tiltekin ákvæði hegningarlaga sem reifuð voru í fyrstu fréttum af málinu og segir það hafa verið afar einfalt fyrir Ríkisútvarpið að vísa til þess að umrædd lagaákvæði hefðu tekið breytingum frá að atvik máls urðu. Það var ekki gert og ekki tekið fram að samneyti Ásthildar Lóu og barnsföður hennar hefði ekki getað fallið undir þágildandi hegningarlög. Þannig, segir nefndin, var auðvelt fyrir lesendur fréttarinnar að draga þá ályktun að Ásthildur Lóra hefði gerst sek um kynferðisbrot. „Að mati nefndarinnar telst sú framsetning, sem áður hefur verið vitnað til, ekki sanngjörn í skilningi 2. gr. siðareglna Blaðamannafélags Íslands,“ segir í úrskurði nefndarinnar en önnur grein kveður á um að blaðamaður skuli setja upplýsingar fram á heiðarlegan og sanngjarnan hátt samkvæmt bestu vitund hverju sinni. Nefndin tekur fram að hún telji að ekki sé um mjög alvarlegt brot sé að ræða. Nefndin hafnaði kröfum Ásthildar að mestu leyti og komst aðeins að þeirri niðurstöðu að framsetning fyrirvaralausrar tilvísunar til gildandi lagaákvæða hafi brotið gegn sanngirnisreglu Blaðamannafélagsins. Það brot taldist ámælisvert að mati nefndarinnar.
Barnamálaráðherra segir af sér Flokkur fólksins Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Fjölmiðlar Ríkisútvarpið Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira