Innlent

Betur fór en á horfðist

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Húsið var reykræst í alla nótt.
Húsið var reykræst í alla nótt. Vísir/Anton Brink

Betur fór en á horfðist er kviknaði í þvotthúsinu Fönn seint í gærkvöldi. Verkstjórinn segir eldsvoðann ekki hafa haft áhrif á starfsemi þvottahússins.

Þorvarður Helgason, verkstjóri þvottahússins Fannar, var á vettvangi í gær þegar slökkviliðið vann að því að slökkva eldinn.

„Þegar ég kom hérna var slökkvilið og lögregla komin á staðinn og Securitas og þeir voru að fara inn í húsið. Þeir opnuðu fyrst bara eina hurð og sendu inn tvo reykkafara. Þeir fundu eld í tveimur grindum sem við notum til að geyma tau en þetta var staðbundið á þessu litla svæði,“ segir Þorvarður í samtali við fréttastofu.

Samkvæmt Stefáni Kristinssyni, varðstjóra hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, var mikill reykur í húsinu og voru tveir dælubílar sendir á vettvang. Vel hafi gengið að slökkva eldinn.

Er slökkviliðið náði að slökkva eldinn var húsið reykræst í alla nótt. Þorvarður tekur fram að eldurinn hafi verið staðbundinn og ekki dreifst um húsið. 

Hann segir eitthvað tau vera ónýtt, til dæmis dúka, servíettur og rúmfatnað, en það sé allt í eigu þvottahússins.

„Nú erum við bara að þrífa og hefja aftur starfsemina,“ segir Þorvarður.

Starfsfólk þvottahússins mætti snemma í morgun og hóf að þrífa til að hægt væri að hefja venjulega starfsemi sem fyrst. 

„Þetta var mjög lítið. Þetta var svart árið 2014 þegar allt brann ofan af okkur í Skeifunni.“

Það muni eflaust margir eftir því þegar kviknaði í þvottahúsinu sem var þá með starfsemi sína í Skeifunni í Reykjavík. Mikill mannfjöldi safnaðist saman til að fylgjast með brunanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×