Selur ísbílinn eftir þrjátíu ár í bransanum Agnar Már Másson skrifar 18. júní 2025 10:40 Ásgeir Baldursson, eigandi Ísbílaútgerðarinnar ehf. Vísir/Daníel Ásgeir Baldursson hefur sett Ísbílaútgerðarina á sölu en hann hefur starfað hjá fyrirtækinu síðan 1994. Fyrirtækið gerir í dag út fjórtán bíla um allt land.
Ásgeir keypti fyrirtækið árið 2006 eftir að hafa unnið hjá fyrirtækinu frá upphafi þess. Hann kveður því ísbílinn eftir rúmlega þrjátíu ár. „Það eru bara breytingar á persónulegum högum,“ svarar Ásgeir spurður hvers vegna hann selji nú bílinn. Hann útskýrir enn fremur að fyrirtækið hafi verið rekið sem fjölskyldufyrirtæki síðustu ár, en nú séu þau konan að skilja. „Þetta gengur ekki almennilega að vera reka þetta einn,“ segir Ásgeir. Fyrirtækið byrjaði með einum bíl um hvítasunnuna árið 1994 en gerir í dag út fjórtán ísbíla. Ásgeir segir að reksturinn hafi gengið vel öll þau ár sem bíllinn hefur verið rekinn, í plús fram til ársins 2023 en þá hafi leiðrétting á fyrri skuldum sett strik í reikninginn. Ársreikningur fyrir 2024 liggur ekki fyrir en í lok árs 2023 nam eigið fé félagsins um 9,9 milljónum króna. „Þetta er alveg klikkað tækifæri í sjálfu sér fyrir einhvern sem á smá pening og vill taka til hendinni,“ segir Ásgeir. En nú tekur annað við hjá Ásgeiri. Hann hefur síðustu ár meðal annars iðkað lomilomi-nudd, sem er á rætur að rekja til Pólýnesíu. „Það er svona áhugamál,“ segir hann. „Ég dúlla mér örugglega fram í aldur með það.“
Tímamót Ís Kaup og sala fyrirtækja Verslun Mest lesið Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Sjá meira