Handbolti

Tárin runnu þegar feðgarnir föðmuðust eftir af­rek Gísla í Meistara­deildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kristján Arason faðmar hér son sinn Gísla Þorgeir Kristjánsson eftir úrslitaleikinn en til hægri þá lyftir Gísli Meistaradeildarbikarnum.
Kristján Arason faðmar hér son sinn Gísla Þorgeir Kristjánsson eftir úrslitaleikinn en til hægri þá lyftir Gísli Meistaradeildarbikarnum. TikTok/Jürgen Fromme/Getty/Jürgen Fromme

Það var mjög tilfinningarík stund á milli Gísla Þorgeirs Kristjánssonar og faðir hans Kristjáns Arasonar eftir að Gísli vann Meistaradeildina um helgina.

Gísli fór fyrir liði Magdeburg í leiknum, skoraði átta mörk og var eftir leikinn kosinn mikilvægasti leikmaður Meistaradeildarinnar í annað skiptið á þremur árum.

Gísli hefur þurft að vinna sig í gegnum mikið mótlæti og erfið meiðsli, nú síðasta á vormánuðum. Hann sýndi hins vegar gríðarlega andlegan styrk og vilja að koma svona sterkur inn í leik á stærsta sviðinu.

Það var ekki búist við sigri Magdeburg fyrir leikinn en með Gísla í slíkum ham er erfitt að eiga við liðið.

Kristján sjálfur er einn besti handboltamaður Íslands frá upphafi og hann þekkir líka erfið axlarmeiðsli og hvað þarf til að spila í gegnum þau.

Kristján var augljóslega afar stoltur af syni sínum eftir leikinn og það má sjá tárin falla þegar hann faðmaði Gísla innilega.

Kristján varð sjálfur Þýskalandsmeistari með Gummersbach og Evrópubikarmeistari með Teka Santander. Gísli hefur unnið þýsku deildina einu sinni og nú Meistaradeildina tvisvar með Magdeburg.

Gunnar Ari Kristjánsson, sonur Kristjáns og eldri bróðir Gísla, náði þessari stund feðganna á myndband og birti á Tik Tok eins og má sjá hér fyrir neðan.

@gunnararii Magdeburg 💚❤️ #final4 #ísland🇮🇸 #köln #handball ♬ Kids - 🧇

Tengdar fréttir

Gísli Þor­geir bestur í annað sinn

Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikmaður Magdeburg, var í annað sinn á ferlinum valinn besti leikmaður úrslitahelgar Meistaradeildar Evrópu í handbolta. Hann var einnig valinn bestur árið 2023 þegar Magdeburg stóð uppi sem Evrópumeistari líkt og í ár.

Gísli Þor­geir og Ómar Ingi Evrópu­meistarar

Þýska handknattleiksfélagið Magdeburg er Evrópumeistari í annað sinn á síðustu þremur árum eftir sigur á Füchse Berlín í úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon voru frábærir í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×