Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Hebu

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Heba Ýr er 33 ára gömul.
Heba Ýr er 33 ára gömul. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Hebu Ýr Pálsdóttur Hillers, 33 ára. Heba sást síðast þriðjudaginn 3. júní síðastliðinn. Hún er 163 cm á hæð, grannvaxin með brúnt sítt hár.

Þegar síðast sást til hennar var hún klædd í svarta úlpu, dökkar leggingsbuxur með mynstri og í bleikum Nike-skóm. 

Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir Hebu Ýrar eru beðin að hafa samband við lögreglu í síma 112. Einnig má senda tölvupóst á abending@lrh.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×