Skoðun

Nennið þið plís blessaða ríkis­stjórn!

Derek T. Allen skrifar

Það er þvílík sýndarmennska í gangi af hálfu íslenskra pólitíkusa. 

Eftir mótmælin gegn innflytjendum á laugardaginn hafa sumir í stjórnmálum tjáð sig með þeim tilgangi að standa upp fyrir þessum félagshóp. Þó að það gleðji mig að sjá fólk í valdastöðu nota röddina sína er það ekki lengur í boði að leyfa slíkum upphrópunum að reynast yfirborðskenndar í eitt annað sinn. 

Samfylkingin, Viðreisn, Flokkur fólksins, þetta er á ykkar ábyrgð. Þið eigið ríkisstjórnina. Ef ykkur er annt um innflytjendur þá gjörið svo vel að grípa til víðtækari aðgerða en dyggðaskreytingar á samfélagsmiðlum. Þið getið gert hvað sem er. Ef þið viljið útrýma hatursorðræðu, koma í veg fyrir misnotkun íslenska fánans eða annars vegar hjálpa innflytjendum, þið eruð í hinu fullkominni stöðu til þess. Ekki vera hneyksluð yfir þessu öllu þegar þið sitjið enn á hakanum ekki að gera neitt. Ástandið hefur breyst þannig að innflytjendur sem hafa fylgt öllum óskrifuðum reglum um hvernig á að vera „einn af þeim góðu“ hafa orðið fyrir hatri. Hvað ætlið þið að gera í því? 

Nennið þið bara að gera eitthvað? Án gríns. 

Höfundur er ritari Pírata í Reykjavík.




Skoðun

Skoðun

„Ég kýs að kjósa ekki“

Silja Sóley Birgisdóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir ,Rósa Guðný Arnardóttir,Jökull Sólberg Auðunsson,Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir,Jón Ferdínand Estherarson,Hannes Pétursson,Halldór Ólafsson,Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir skrifar

Skoðun

Samfélagsgróðurhús

Árný Fjóla Ásmundsdóttir,Berglind Ósk Guttormsdóttir,Halldór Grétar Einarsson,Þorsteinn Hjartarson skrifar

Sjá meira


×