Innlent

Laugdælingur og Hvergerðingur hlutskarpastir í Pangeu

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Hundrað nemendur tóku þátt í úrslitakeppninni í MH í dag.
Hundrað nemendur tóku þátt í úrslitakeppninni í MH í dag.

Úrslitakeppni stærðfræðikeppninnar Pangeu fyrir nemendur í 8. og 9. bekk var haldin í tíunda skiptið í dag í Menntaskólanum í Hamrahlíð. Keppnin er sú stærsta sinnar tegundar á Íslandi og siguvegararnir í ár komu úr Laugardal og Hveragerði.

Undankeppnir fóru fram í 67 grunnskólum þar sem 4.698 nemendur tóku þátt og var hundrað hlutskörpustu nemendunum boðið í úrslitakeppnina. Að keppninni lokinni var boðið upp á kræsingar og skemmtiatriði áður en peningaverðlaun voru veitt efstu þremur keppendum í hvorum bekk fyrir sig.

Eftirfarandi hlutu verðlaun í 8. bekk:

  • 1. sæti - Sigurður Elí Vignisson - Grunnskólinn í Hveragerði
  • 2. sæti - Hákon Jensson - Víkurskóli
  • 3. sæti - Malo Tristan Lefeuvere - Landakotsskóli

Eftirfarandi hlutu verðlaun í 9. bekk:

  • 1. sæti - Úlfur Freyr Reynisson - Laugalækjarskóli
  • 2. sæti - Hrannar Ási Eydal - Ölduselsskóli
  • 3. sæti - Catherine Sheibley - Landakotsskóli
Verðlaunahafarnir sex sem komu frá fimm ólíkum skólum.

Enginn hafi tekið hann alvarlega í fyrstu

Keppnin í ár var styrkt af Eflu verkfræðistofu en hún er að að öðru leyti haldin í sjálfboðaliðastarfi af Félagi Horizon í samstarfi við stærðfræðinema við Háskóla Íslands. Félag Horizon eru félagasamtök sem vilja efla þátttöku og inngilidingu innflytjenda og flóttamanna á Íslandi með skipulagningu viðburða sem koma á samtali þvert á menningarheima.

Krakkarnir voru vel einbeittir meðan á kepnninni stóð.

„Fyrir tíu árum var ég nýfluttur til Íslands og fékk þá hugmynd að stofna stærðfræðikeppni fyrir grunnskólanema af öllu landinu til að auka áhuga á stærðfræði,“ segir Muhammed Emin Kizilkaya, stjórnarmeðlimur Horizon og einn stofnenda Pangeu á Íslandi, í tilkynningu frá Pangeu. 

„Þetta var mjög erfitt í fyrstu, því enginn tók mig alvarlega. Síðan komst ég í samband við nemendafélag stærðfræðinema við Haskóla Íslands og þá fóru hjólin að snúast og nú er keppnin haldin í tíunda skipti. Þetta sýnir hvað hægt er að gera ef við gefum öllum tækifæri til að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd,“ sagði Muhammed.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×