Innlent

Hæsti­réttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs

Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar
Ítarlega hefur verið fjallað um mál Sverris Þórs undanfarin misseri en hann er sakaður um stórfelld fíkniefnalagabrot á alþjóðavísu og skipulagða glæpastarfsemi.
Ítarlega hefur verið fjallað um mál Sverris Þórs undanfarin misseri en hann er sakaður um stórfelld fíkniefnalagabrot á alþjóðavísu og skipulagða glæpastarfsemi. Vísir

Sverrir Þór Gunnarsson, sem var handtekinn í Brasilíu árið 2023 grunaður um þátttöku í alþjóðlegu fíkniefna- og peningaþvættisneti, verður áfram í gæsluvarðhaldi. Hæstiréttur Brasilíu (STF) hafnaði í byrjun apríl beiðni um lausn úr haldi og vísaði til alvarleika brotanna og sterkra vísbendinga um að Sverrir hafi gegnt lykilhlutverki í skipulagðri glæpastarfsemi.

Beiðnin var lögð fram af verjanda Sverris, Nefi Cordeiro, og var til umfjöllunar í réttinum dagana 28. mars til 4. apríl. Dómurinn taldi ekki tilefni til að hnekkja fyrri ákvörðunum undirdómstóla um varðhald.

Sagðist sjálf hafa aflað sér tekna sem fylgdarstúlka

Mál Sverris Þórs, betur þekktur sem Sveddi Tönn, hófst í kjölfar umfangsmikilla aðgerða brasilísku alríkislögreglunnar undir nafninu Operation Match Point. Hann er grunaður um að hafa komið að smygli á miklu magni fíkniefna frá Suður-Ameríku til Evrópu og Íslands. Einnig er hann ákærður fyrir að hafa þvegið fé í gegnum bankareikninga og eignir skráðar á nafni annarra – þar á meðal konu að nafni Deborah D. D. S. M. M., sem lýsti tengslum sínum við Sverri fyrir dómi sem „faglegum“.

Að beiðni lögreglu hafa nokkrar eignir verið frystar í tengslum við rannsókn málsins. Þar á meðal eru íbúð í Montes Claros sem var greidd að fullu með fjármunum sem ákæruvaldið telur rekja til Sverris, ný Honda HR-V bifreið sem Deborah keypti árið 2022, og yfir 50.000 brasilískar rílur á bankareikningi sem hefur verið frystur.

Deborah hefur haldið því fram að hún hafi sjálf aflað þessara tekna sem fylgdarstúlka og að þær hafi staðið undir kaupum eignanna. Dómstólar hafa þó hafnað kröfum hennar um að eignirnar verði leystar úr haldi og telja sterkar vísbendingar um að fjármunirnir séu hluti af skipulagðri glæpastarfsemi.

Í gögnum sem lögregla hefur lagt fram, þar á meðal símtölum, fjármálaskjölum og öðrum heimildum, kemur fram að Sverrir hafi nýtt sér eignir skráðar á nafni annarra til að dylja raunverulegt eignarhald og uppruna fjár, sem er þekkt aðferð í peningaþvætti.

Sverrir og Deborah hafa bæði verið ákærð fyrir peningaþvætti og tengsl við alþjóðlegt fíkniefnaviðskiptanet. Enn hefur ekki fallið endanlegur dómur í málinu, sem heldur áfram fyrir dómstólum í Brasilíu.


Tengdar fréttir

Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna

„Hann er klókur. Og hann er rosalega bíræfinn í því sem hann ætlar sér,“ segir Karl Steinar Valsson yfirlögregluþjónn á alþjóðasviði ríkislögreglustjóra og á þar við Sverri Þór Gunnarsson, eða Svedda tönn, sem nú bíður dóms í Brasilíu fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot á alþjóðavísu og skipulagða glæpastarfsemi.

Sveddi tönn ákærður í Brasilíu

Sverr­ir Þór Gunn­ars­son, betur þekktur sem Sveddi tönn, hefur verið ákærður af ríkissaksóknara í Brasilíu fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot og skipulagða glæpastarfsemi. Þann 3. júlí síðastliðinn var fyrirtaka í málinu hjá dómstól í Rio de Janeiro þar sem sönnunargögn voru lögð fram.

Strákurinn úr Breiðholti sem gerðist fíkniefnabarón

„Hinn ákærði sýnir merki um andfélagslegan persónuleika, sem endurspeglast í því að hann á erfitt með að laga sig að reglum samfélagsins. Hinn ákærði er drifinn áfram af voninni um skjótfenginn gróða.“ Þetta kemur fram í niðurstöðu dómstóls í Ríó de Janeiro árið 2012, þegar Sverrir Þór Gunnarsson var dæmdur í 22 ára fangelsi fyrir umfangsmikið fíkniefnasmygl. Vinur Sverris úr æsku segir hann alltaf hafa verið glæpamann.

Tengsl við Afríku og tvær rót­grónar fangelsis­klíkur

Fíkniefnahringirnir sem Sverrir Þór Gunnarsson og ítalskur karlmaður eru sagðir hafa stýrt í Brasilíu smygluðu ekki aðeins efnum til og frá Evrópu heldur Afríku og annarra landa Suður Ameríku einnig. Þá hafa hringirnir tengsl við tvö alræmd og rótgróin glæpasamtök í fangelsum.

Sveddi tönn hand­tekinn í um­fangs­miklum að­gerðum í Brasilíu

Íslenskur karlmaður var handtekinn í Brasilíu í morgun í umfangsmiklum aðgerðum brasilísku lögreglunnar í samvinnu við meðal annars íslensku lögregluna. Samkvæmt heimildum fréttastofu er um að ræða Sverri Þór Gunnarsson, betur þekktur sem Sveddi tönn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×