Erlent

Tveir fram­bjóð­endur myrtir á nokkrum dögum

Samúel Karl Ólason skrifar
Lögregluþjónar og hermenn að störfum í Veracruz-ríki í Mexíkó.
Lögregluþjónar og hermenn að störfum í Veracruz-ríki í Mexíkó. AP/Victoria Razo)-

Tveir borgarstjóraframbjóðendur ríkisstjórnarflokks Mexíkó hafa verið myrtir í Veracruz-ríki. Ofbeldi að þessu tagi er gífurlega algengt í Mexíkó og sérstaklega í tengslum við kosningar en sveitarstjórnarkosningar fara fram í ríkinu í næsta mánuði.

Yesenia Lara Gutiérrez og fjórir aðrir sem voru með henni, þar á meðal dóttir hennar, voru skotin til bana á samstöðufundi í Texistepec. Þrír til viðbótar særðust í árásinni, sem var fönguð í beinni útsendingu á Facebooksíðu Gutiérrez.

Gutiérrez var á göngu um götur Texistepec að hitta og ræða við íbúa þegar skothríðin hófst. Um tuttugu skotum var hleypt var hleypt af, samkvæmt frétt CNN.

Þessi árás var gerð í kjölfar þess að Germán Anuar Valencia, sem tilheyrir einnig Morena-flokki Claudiu Sheinbaum, forseta Mexíkó, var skotinn til bana á fyrstu degi kosningabaráttunnar þann 29. apríl. Hann var skotinn á kosningamiðstöð sinni í Coxquihui, samkvæmt AP fréttaveitunni.

Kosningabaráttur geta verið mjög blóðugar í Mexíkó en síðasta sumar voru tugir frambjóðanda í landinu myrtir. Frambjóðendur og stjórnmálamenn eru þó vinsæl skotmörk glæpamanna, hvort sem það er í kosningabaráttu eða ekki.

Glæpamenn skutu til að mynda Benito Aguas, þingmann, til bana í Veracruz í desember. Þá var nýkjörinn borgarstjóri Chilpancingo í Guerrero-ríkis afhöfðaður í október.

Rocío Nahle, ríkisstjóri Veracruz, sagði á blaðamannafundi í gær að gengið yrði úr skugga um að öryggi vegna kosninganna yrði tryggt. Þá hefur hún heitið því að morðingja Gutiéerrez muni finnast og að þeim verði refsað.

„Ekkert embætti er lífsins virði,“ skrifaði Nahle í færslu á X, eins og hún sagði á blaðamannafundinum. Þar kom fram að að minnsta kosti 57 frambjóðendur í ríkinu hefðu farið fram á aukna öryggisgæslu vegna kosninganna, sem fara fram þann 1. júní.

Á minningarathöfn í gær, mánudag, töluðu ættingjar og vinir Gutiérrez um ofbeldið vegna kosninganna og hræðsluna sem það hefur valdið.

„Við getum ekki haldið áfram með þetta óöryggi, Við erum þreytt á þessu öllu saman. Þetta eru hryðjuverk,“ sagði einn á athöfninni. „Það eru fimm manneskjur látnar, ekki ein. Við búum við hina verstu hryðjuverkastarfsemi.“

Metár í pólitísku ofbeldi

Ofbeldið og morðin má að miklu leyti rekja til umfangsmikilla átaka glæpasamtaka í Mexíkó og baráttu þeirra um yfirráð í landinu. Þegar kemur að pólitísku ofbeldi var met sett í Mexíkó í fyrra, samkvæmt mannréttindasamtökum.

Þá var skráð 661 tilfelli árása á fólk eða skemmdarverk sem tengjast stjórnmálum. Í mörgum tilfellum var um að ræða árásir á fólk sem sat annað hvort í embætti á sveitarstjórnarsviðinu eða sóttist eftir því.

Glæpamenn í Mexíkó eru margir hverjir mjög vel vopnum búnir. Í mjög einföldu máli sagt hafa glæpagengi þar í landi lengi flutt mikið magn fíkniefna víða um heim og þá sérstaklega til Bandaríkjanna. Frá Bandaríkjunum fá þeir mikið magn peninga fyrir þessi fíkniefni og eru þeir peningar meðal annars notaðir til að kaupa gífurlegt magn skotvopna í Bandaríkjunum og flytja þau til Mexíkó.


Tengdar fréttir

Hafnaði hermönnum Trump: „Fullveldið er ekki til sölu“

Claudia Sheinbaum, forseti Mexíkó, segist hafa hafnað boði Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að senda bandaríska hermenn yfir landamærin til að aðstoða Mexíkó í baráttunni við glæpagengi. Sheinbaum segir fullveldi landsins ekki til sölu.

Biðja Trump um að sýna hörku vegna vatnsdeilna við Mexíkó

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur hótað því að beita Mexíkó tollum eða refsiaðgerðum standi ríkið ekki við samkomulag frá 1944 um deilingu vatns úr ánni Rio Grande. Bændur í Texas, sem segja þurrka vera að gera út af við uppskeru þeirra, hafa beðið Trump um að sýna hörku.

Staða Sinaloa slæm eftir blóðug átök

Staða Sinaloa-glæpasamtakanna í Mexíkó hefur versnað til muna á undanförnum mánuðum vegna blóðugra átaka um stjórn samtakanna víðfrægu. Á sama tíma standa samtökin frammi fyrir auknum þrýstingi frá Bandaríkjunum og yfirvöldum í Mexíkó.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×