Innlent

Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Egilsstaðir í blíðviðri.
Egilsstaðir í blíðviðri. vísir/vilhelm

Slökkviliðið á Austurlandi er á varðbergi vegna aukinnar hættu á gróðureldum en búist er við miklum þurrk og hita þar næstu daga. Slökkviliðsstjóri segist hafa mestar áhyggjur af sumarbústaðabyggðum.

Mikið blíðviðri gengur nú yfir víða um land og hvergi er það betra en á Austurlandi. Búist má við því að hitastig nái um 21 gráðu þegar best lætur á Egilsstöðum. Almannavarnanefnd lögreglunnar á Austurlandi hefur hvatt íbúa til að fara varlega með eld þar sem hætta á gróðureldum hefur aukist til muna síðustu daga.

Versti tíminn núna

Haraldur Geir Eðvaldsson, slökkviliðsstjóri Múlaþings, fagnar góða veðrinu en tekur fram að slökkviliðið hafi þó nokkrar áhyggjur vegna næstu daga. Á sunnudaginn er búist við 26 stiga hita á Egilsstöðum.

„Það er nú bara glampandi sól og logn. Bara alveg frábært veður, 20 stiga hiti og gjörsamlega frábært veður. Það er auðvitað þannig að þegar það er svona langvarandi gott veður. Þá þornar jörðin hratt og þetta er versti tíminn núna áður en gróðurinn er sprunginn almennilega út.“

Haraldur Geir Eðvaldsson að störfum á Seyðisfirði.vísir

Ef eldur kemur upp gæti hann fljótt breist út og orðið að stórum eldsvoða enda mikill þurrkur á svæðinu. Mesta hættan sé þar sem fólk er með opinn eld.

„Við erum alltaf með hugan við þessar sumarbúastaðabyggðir. Sem eru byggðar inni í skógi. Þar er mesta hættan. Þar er mest af fólki og þar gengur mest á. Það eru svæðin sem við höfum mestar áhyggjur af.

Fólk eigi ekki að leika sér með eld

Hverju þarf fólk að huga að til að kveikja ekki óvart gróðureld?

„Það er að ganga vel um grillin sín. Ef menn eru að nota kolagrill, þarf að huga vel að því að hella ekki úr þeim áður en allt er dautt og fara varlega með einnota grillin og þetta að vera ekki að leika sér með eld einhvers staðar þar sem getur verið hætta.“

Haraldur hvetur fólk til að sýna ítrustu aðgát. Fólk eigi að hringja umsvifalaust í slökkviliðið ef þau kveikja í.

„Ef þú ætlar að vera með grill einhvers staðar er hægt að vera með alls konar varúðarráðstafanir. Vera með sand í fötu eða eitthvað sem þú getur notað til að hella yfir ef allt er að fara í vitleysu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×