Skoðun

Heil­brigðis­starfs­fólk eru ekki skot­mörk

Elísabet Herdísar Brynjarsdóttir, Hildur Harðardóttir, Tryggvi Egilsson, Sunna Snædal, Yousef Tamimi og Örvar Gunnarsson skrifa

Undirrituð eru heilbrigðisstarfsfólk sem fordæma kerfisbundnar árásir Ísraels á heilbrigðisstarfsfólk og -stofnanir á Gaza. Stofnað hefur verið til undirskriftalista þar sem biðlað er til Kristrúnar Frostadóttur, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur og Ölmu D. Möller, sem tóku afstöðu með Palestínu í kosningabaráttu sinni, um að standa við orð sín og beita sér fyrir friði í Palestínu eins og nýleg könnun Maskínu sýndi að sé vilji meirihluta Íslendinga.

Nú þegar Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, hefur tilkynnt hertar hernaðaraðgerðir og brottflutning íbúa á Gaza með það að markmiði að hernema og innlima landsvæðið er löngu orðið tímabært að íslensk stjórnvöld grípi til raunverulegra aðgerða.

Neyðarástandið á Gaza stigmagnast með hverjum deginum, þar sem engin hjálpargögn hafa borist inn á svæðið síðan 2. mars. Það á meðal annars við um hreint vatn, mat, lyf, nauðsynlegan búnað fyrir heilbrigðisþjónustu, eldsneyti og rafmagn. Þessar alvarlegu takmarkanir á nauðsynjum og sú staðreynd að 90% íbúa Gaza hafa verið neydd til að flýja heimili sín leiðir ennfremur til útbreiðslu faraldra og nú alvarlegrar hungursneyðar. Talið er að minnsta kosti 57 hafa látið lífið af völdum vannæringar á síðustu tveimur mánuðum og að um 290.000 börn á Gaza séu í lífshættu vegna alvarlegrar vannæringar og skorts á aðgengi að lífsnauðsynlegri heilbrigðisaðstoð.

Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni hafa 670 árásir verið gerðar á heilbrigðisstofnanir á Gaza síðan 7. október 2023 og einungis 21 af 36 spítölum á svæðinu eru starfhæfir og það einungis að hluta til.

Samkvæmt heilbrigðisráðuneytinu á Gaza hafa yfir 1400 heilbrigðisstarfsmenn verið myrtir á Gaza síðan 7. október 2023. Það er eins og ef einn af hverjum 5 starfsmönnum Landspítalans hefði verið myrtur. Þar að auki hefur fjöldi heilbrigðisstarfsfólks verið fangelsað, pyntað eða horfið, en nú er talið að um 360 heilbrigðisstarfsmenn séu í haldi í ísraelskum fangelsum.

Það sem hefur átt sér stað á Gaza eru alvarleg brot á fjórða Genfarsáttmálanum sem Ísland er hluti af. Þessar árásir eru jafnframt ómannúðlegar, óréttlætanlegar og ólöglegar samkvæmt alþjóðalögum, sem Ísland skuldbindur sig til að lúta. Heilbrigðisstarfsfólk, heilbrigðisstofnanir, sjúkrabílar og sjúklingar ættu aldrei að vera skotmörk. Þegar ráðist er á spítala og heilbrigðisstarfsfólk er markvisst verið að koma í veg fyrir möguleika samfélagsins til að ná bata og eiga framtíð. Ef gjörðum Ísraels er leyft að viðgangast án aðgerða frá alþjóðasamfélaginu, eru skýr skilaboð send um að heilbrigðisstarfsfólk alls staðar séu réttlætanleg skotmörk. Það mætti því líta á sem svo að árásir gegn heilbrigðisstarfsfólki á Gaza séu árásir gegn heilbrigðisstarfsfólki út um allan heim. Okkur ber skylda til að gera allt sem í okkar valdi stendur til að stöðva þessi glæpsamlegu athæfi og sinna þannig grundvallarhlutverki okkar sem heilbrigðistarfsfólk: að vernda og varðveita líf og heilsu fólks.

Þrátt fyrir hörmungarnar sem Ísrael lætur dynja á Palestínu, hefur palestínskt heilbrigðisstarfsfólk ítrekað hætt lífi sínu til þess að sinna skjólstæðingum sínum eftir fremsta megni og hafa, með dæmalausri seiglu, útsjónarsemi og hugrekki, sýnt okkur hvað það þýðir raunverulega að sverja eið í þágu skjólstæðinga sinna.

Við stöndum með kollegum okkar í Palestínu og hvetjum allt heilbrigðisstarfsfólk á Íslandi að skrifa undir listann. Þar skorum við á Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra, Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra að standa við orð sín og taka þátt í að binda enda á hörmungarnar í Palestínu með eftirfarandi gjörðum:

  1. Að Ísland beiti sér fyrir því að ótakmarkaðri mannúðaraðstoð verði tafarlaust hleypt inn á Gaza
  2. Að Ísland komi á viðskiptaþvingunum gegn Ísrael í samstarfi við Norðurlöndin og önnur ríki eins fljótt og auðið er, líkt og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur nú þegar talað fyrir.
  3. Að Ísland styðji ákæru Suður-Afríku á hendur Ísraelsríkis fyrir brot á Sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn þjóðarmorði
  4. Að Ísland beiti sér fyrir alþjóðlegu vopnasölubanni til Ísraels
  5. Að íslensk stjórnvöld taki undir kröfu framkvæmdastjóra Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar Dr. Ghebreyesus og aðalritara Amnesty International Dr. Callamard um að Dr. Hussam Abu Safyia, forstjóra Kamal Adwan sjúkrahússins á Norður Gaza, verði tafarlaust sleppt úr haldi Ísraelshers. Það sama á við um alla fanga, þar með talið annað heilbrigðisstarfsfólk á Gaza, sem hefur verið handtekið og er haldið án dóms og laga.

Elísabet Herdísar Brynjarsdóttir, hjúkrunarfræðingur

Hildur Harðardóttir, hjúkrunarfræðingur

Tryggvi Egilsson, læknir

Sunna Snædal, læknir

Yousef Tamimi, hjúkrunarfræðingur

Örvar Gunnarsson, læknir




Skoðun

Sjá meira


×