Skoðun

Ljúkum því sem hafið er - ný bál­stofa í Gufu­nesi

Ingvar Stefánsson skrifar

Kirkjugarðar Reykjavíkur (KGRP) er óhagnaðardrifin sjálfseignarstofnun sem hefur rekið bálstofu í Fossvogi frá árinu 1948. Frá upphafi hefur þjónustan verið gjaldfrjáls fólki sem búsett er á Íslandi óháð trú eða lífsskoðun. Í stjórn kirkjugarðanna eru fólk frá öllum söfnuðum og lífsskoðunarfélögum sem hafa 1.500 safnaðarmeðlimi eða fleiri.

Í ár er gert ráð fyrir að bálfarir verði um 1.260 talsins og fer þeim fjölgandi ár frá ári. Hlutfall þeirra sem kjósa bálför á Íslandi stefnir nú í um 50% á landsvísu en voru um 44% árið 2022. Á höfuðborgarsvæðinu er hlutfallið enn hærra eða um 60%.

Rekstur bálstofu má því óhætt kalla mikilvægan innvið í íslensku samfélagi.

Ný bálstofa langt komin í Gufunesi

Eins og allir þekkja er núverandi bálstofa komin til ára sinna og þrátt fyrir töluvert viðhald og endurbætur standa ofnar ekki undir þeim kröfum sem gerðar eru til rekstur bálstofu í dag. Undanfarin 25 ár hafa Kirkjugarðar Reykjavíkur ítrekað bent á brýna þörf fyrir endurnýjun bálstofu.

Nærri tveir áratugir hafa liðið síðan ný bálstofa var teiknuð og lóð undirbúin á Hallsholti í Gufuneskirkjugarði en þegar bankahrunið varð árið 2008 voru öll áform sett á bið.

Í Gufunesinu liggja því fyrir teikningar að bálstofu, samþykkt deiliskipulag auk þess sem jarðvegspúði og raflagnir er klárar. Þá er búið að reisa öll sameiginleg rými, aðstöðu fyrir starfsfólk, snyrtingar, skrifstofu, vegi, bílastæði o.fl. Aðeins þarf að reisa hús yfir ofna og líkhús í tengslum við bálstofuna.

Sú bálstofa verður búin fullkomnasta mengunarvarnarbúnaði sem völ er á og verður hægt að klára byggingu hennar á hratt, vel og á hagkvæman hátt.

Tryggja þarf fjármögnun

Kirkjugarðar Reykjavíkur munu ekki geta klárað byggingu nýrrar bálstofu nema að rekstur og fjárfesting séu tryggð með einhverjum hætti eða að afstaða dómsmálaráðuneytisins liggi fyrir.

Kirkjugarðar Reykjavíkur fá um 72 milljónir í tekjur á ári frá hinu opinbera fyrir rekstur og viðhald bálstofu. Það stendur hvorki undir föstum kostnaði, fjármagnskostnaði né endurbótum.

Miðað við 1250 bálfarir á ári er greiðsla fyrir hverja bálför nú um 57.000 krónur sem er um helmingur þess sem tíðkast fyrir sambærilega þjónustu í Noregi og á Bretlandi, þar sem greitt er um 110.000 – 175.000 krónur fyrir hverja bálför.

Fái Kirkjugarðar Reykjavíkur sem nemur sambærilegu gjaldi og tíðkast þar er hægt að ráðast tafarlaust í að klára bálstofuna í Gufunesi.

Höfundur er framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkur.




Skoðun

Sjá meira


×