Góður möguleiki á að sjá deildarmyrkva Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 29. mars 2025 08:41 Deildarmyrkvinn nær hámarki rétt eftir klukkan ellefu. EPA/Elvis Gonzalez Deildarmyrkvi á sólu verður í dag. Hann verður vel sjáanlegur á Vesturlandi þar sem bjartviðri er spáð meðan hann gengur yfir. „
Sjónarspilið þegar tunglið kemur milli sólar og jarðar byrjar um tíuleytið og nær hámarki sínu rétt eftir klukkan ellefu. Svo verður þetta búið rétt eftir klukkan tólf,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Veðurfræðingur varar við því að horfa á sólmyrkva með berum augum, það geti valdið sjónskaða. Ef fólk hyggst fylgjast með deildarmyrkvanum sé til að mynda mælt með að horfa í gegnum rafsuðugler eða þar til gerð sólmyrkvagleraugu. Í dag verður austan og norðaustan 8-13 m/s og snjókoma með köflum, en 13-20 m/s með talsverðri snjókomu um tíma Suðaustanlands, einkum sunnan Öræfajökuls. Gul viðvörun er í gildi á Suðausturlandi til klukkan sjö í kvöld. Víða verður vægt frost en spáð er allt að fimm stigum á sunnan- og suðvestanverðu landinu. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á sunnudag:Breytileg átt 3-8 m/s, skýjað með köflum og sums staðar dálítil él, hiti um frostmark. Vaxandi suðaustanátt eftir hádegi með slyddu eða rigningu, en snjókomu norðanlands um kvöldið. Hlýnar í veðri.Á mánudag:Suðvestan 10-18, hvassast sunnantil. Rigning eða slydda, en að mestu bjart norðaustantil. Hiti 1 til 6 stig, en kólnar með éljum síðdegis.Á þriðjudag:Suðlæg átt 8-15 og rigning eða slydda, en lengst af þurrt norðaustantil. Hiti 1 til 10 stig, hlýjast sunnan- og austanlands.Á miðvikudag:Minnkandi vestlæg átt og él eða snjókoma. Frost 0 til 4 stig, en yfirleitt frostlaust sunnantil.Á fimmtudag:Sunnanátt og rigning eða slydda, en bjart með köflum á austanverðu landinu. Hiti 1 til 8 stig, svalast á Vestfjörðum.Á föstudag:Útlit fyrir suðvestlæga átt. Skýjað og dálítil væta af og til, en bjart veður á austanverðu landinu. Hiti 6 til 12 stig.
Veður Geimurinn Tengdar fréttir Lokaæfing fyrir almyrkva Deildarmyrkvi á sólu mun sjást vel um allt land í fyrramálið. Sævar Helgi Bragason, Stjörnu-Sævar, segir undirbúning vera að hefjast fyrir almyrkvann sem verður í ágúst á næsta ári. Þá muni landið væntanlega fyllast af túristum og álag aukast á innviði. 28. mars 2025 13:11 Mest lesið Tveir ferðamenn fundust látnir á Edition Innlent Frönsk kona grunuð um að bana dóttur sinni og eiginmanni Innlent Rannsaka „alvarlegt atvik“ á Edition Innlent Sigfús Aðalsteinsson: Trömpistinn sem vill bjarga Íslandi Innlent Tveir ríkisþingmenn skotnir á heimilum sínum Erlent Sinueldur kviknaði út frá brennandi rusli: „Erum pínulítið pirraðir á þessu“ Innlent Selja sinn sögufrægasta grip til að lifa af sumarið Innlent Flúði á brott eftir alvarlega líkamsárás Innlent Segir Íran hafa farið yfir strikið Erlent Spáir því að Fljótagöng verði næstu jarðgöng Innlent Fleiri fréttir Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Bjart og milt peysuveður Glittir í endurkomu sumarsins Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Áframhaldandi norðan strekkingur Óveðrinu slotar en áfram hætta á skriðuföllum Grjóthrun á Siglufjarðarvegi og skriðufall í Neskaupstað Það versta yfirstaðið en veður áfram leiðinlegt á morgun Vaktin: Ekta sumarhret leikur landann grátt Skriðuhætta geti skapast á ólíklegum stöðum Lýsa yfir óvissustigi vegna veðurs Höfuðborgarsvæðið bætist í hópinn Lægð nálgast sem dýpkar ört Rigning í dag og svo von á júníhreti Breytileg átt og skúrir á víð og dreif Skin og skúrir í dag Hægviðri og lítilsháttar væta Víða skýjað, væta og hiti að þrettán stigum Áfram norðanátt og sums staðar strekkingsvindur Rigning í kortunum Hitabylgjan sú mesta í maímánuði svo vitað sé Skýjað og sums staðar blautt Reikna með talsverðri rigningu austantil Varað við snörpum hviðum Leiðin opnast fyrir lægðir að sækja að landinu Sjá meira
Lokaæfing fyrir almyrkva Deildarmyrkvi á sólu mun sjást vel um allt land í fyrramálið. Sævar Helgi Bragason, Stjörnu-Sævar, segir undirbúning vera að hefjast fyrir almyrkvann sem verður í ágúst á næsta ári. Þá muni landið væntanlega fyllast af túristum og álag aukast á innviði. 28. mars 2025 13:11