Í sjálfheldu í fimm daga: „Ég er vitlausi ameríski ferðamaðurinn“ Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifa 19. mars 2025 16:48 Joey um borð í Hafbjörginni eftir að hafa setið fastur í fjörunni í fimm daga. Landsbjörg Bandarískur ferðamaður, sem var bjargað af björgunarsveitum eftir að hafa verið fastur í Loðmundarfirði í fimm daga, segist uppfullur þakklætis í garð allra sem komu að björguninni. Hann sé fullkomið dæmi um vitlausa ameríska túristann sem sífellt sé varað við. Hann vonar að saga sín verði öðrum víti til varnaðar.
Joseph Syta ferðaðist frá Bandaríkjunum til Seyðisfjarðar fyrir tæpum tveimur vikum og var við komuna, eftir að hafa sofið í flugvélinni, óþreyttur. Joseph, sem jafnan er kallaður Joey, hefur dvalið nokkrum sinnum í lengri tíma á Seyðisfirði og ákvað um kvöldið að ganga að Brimnesi, ysta bænum á norðurströnd fjarðarins. „Ég tók með mér vasaljós, vistir og hvaðeina sem ég þurfti að taka með. Nóg af hlýjum fötum. Ég ætlaði að fara og finna húsið en ég fór fram hjá því. Stundum er erfitt að sjá hús í myrkri.“ Taldi öruggast að halda kyrru fyrir Þegar hann áttaði sig á því í birtingu ákvað Joey að ganga áfram - enda var dagurinn bjartur og fallegur og veður stillt. Um miðjan sunnudag gekk hann út á ís í suðurhlíð Loðmundarfjarðar og missti bakpokann sinn. Við tilraun til að ná pokanum aftur féll hann í fjöruna og fékk höfuðhögg. „Ég hélt ég hefði ökklabrotnað eða hryggbrotnað. Ég fann rosalega mikið til.“ Fljótlega áttaði hann sig svo á því að hann sæti fastur. Beggja vegna hans hafi verið klettar sem hefði verið ómögulegt að komast fram hjá. „Hefði ég reynt að klöngrast fram hjá klettunum hefði ég getað fallið í sjóinn, ég hefði getað skorið mig á hrúðurkarli og öldurnar hefðu getað hrifsað mig með sér. Ég taldi því öruggara að halda kyrru fyrir í fjörunni,“ segir Joey. „Ég hafði ekki borðað í nokkurn tíma, ég var úrvinda eftir gönguna og klifrið. Ég fattaði að ég þyrfti að finna leið til þess að komast af þarna í einhvern tíma.“ Tuggði á grasi og saup úr fossi Joey fann litla gróf upp við klettavegginn, þar sem hann bjó um sig og hafði aðgang að ferskvatni úr litlum fossi. Hann hafði engan mat með sér eftir að hafa týnt bakpokanum og tuggði nýsprottið gras í von um einhverja næringu. Joey segir vini sína og fjölskyldu hafa verið honum hugleikin meðan á þessu stóð. „Ég hugsaði um að sjá þau á ný og það sem ég myndi segja við þau sæi ég þau aftur. Ég hugsaði stanslaust: Mikið sakna ég þeirra, ég mun sjá þau aftur, það er ekki annað í stöðunni.“ Hann segist lítið hafa getað sofið og var orðinn uppgefinn á sál og líkama þegar björgunarsveitir fundu hann síðastliðinn fimmtudag, fimm dögum eftir að hann lagði af stað. Hann hafi hrokkið upp við vélarhljóð og vitað að nú yrði honum bjargað. Á batavegi „Ég heyri þegar þeir drepa á bátnum og veit þá að þeir eru að koma að bjarga mér. Svo mikil von, gleði og þakklæti. Það var alveg einstakt að vita að ég hefði svo auðveldlega getað dáið en ég dó ekki. Það er svolítið yfirþyrmandi tilfinning.“ Hann slapp með nokkrar skrámur og hafði lést um þónokkur kíló en er á batavegi, andlegum og líkamlegum að eigin sögn. Eftir björgunina dvaldi hann á Akureyri í nokkra daga og ræddi við sálfræðing. Búið að sárum Joey. Landsbjörg Joey segist vona að saga hans verði öðrum víti til varnaðar. „Ég er vitlausi ameríski ferðamaðurinn, á einhvern hátt. Ég treysti ekki innsæinu. Ég hugsaði: Nei, ég held áfram og finn út úr þessu síðar. Ég þarf ekki að segja neinum hvert ég er að fara.“ Hann stefnir á að dvelja á Seyðisfirði næstu vikuna enda haldi hann sérlega upp á bæinn. Raunar segir hann að ef hann gæti myndi hann flytja þangað. „En ég stefni á að koma hingað aftur og dvelja í dágóðan tíma.“
Björgunarsveitir Ferðalög Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Sjá meira