Dálítil væta og bætir í vind Atli Ísleifsson skrifar 19. mars 2025 07:08 Hiti verður á bilinu fimm til tíu stig. Vísir/Vilhelm Útlit er fyrir fremur hæga suðlæga átt í dag með dalítilli vætu á víð og dreif, en þurru veðri austanlands.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að síðdegis nálgist skil úr vestri og það bætir í vind. Hiti verður á bilinu fimm til tíu stig. Í kvöld má búast við suðaustan strekkingi með rigningu á Suður- og Vesturlandi. „Á morgun verða skilin áfram yfir landinu, en þokast þó smám saman til vesturs. Búast má við sunnan strekkingi og rigningu, en lítil eða engin úrkoma í norðausturfjórðungi landsins. Hlýtt miðað við árstíma, hiti á bilinu 5 til 10 stig. Síðdegis á morgun verða skilin farin yfir á vestanverðu landinu og þá dregur úr vindi þar og kólnar með dálitlum skúrum eða éljum,“ segir í tilkynningu. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Sunnan 8-15 m/s og rigning, en úrkomulítið norðaustanlands. Hiti 5 til 10 stig. Hægari suðvestanátt á vestanverðu landinu síðdegis með skúrum eða éljum og kólnar. Á föstudag: Suðlæg átt 3-10 og dálítil él, en þurrt á Norður- og Austurlandi. Hiti 0 til 5 stig. Á laugardag: Norðlæg átt 3-10 og dálítil él á norðanverðu landinu fram að hádegi, annars víða þurrt og bjart veður. Frost 0 til 5 stig, en frostlaust sunnanlands yfir daginn. Á sunnudag: Suðlæg eða breytileg átt 3-8. Súld eða rigning sunnanlands og hiti 1 til 6 stig. Dálítil slydda eða snjókoma norðantil með hita kringum frostmark. Á mánudag og þriðjudag: Breytileg átt og úrkoma með köflum í flestum landshlutum. Hiti kringum frostmark, en allt að 6 stiga hiti sunnan- og suðvestanlands.
Veður Mest lesið Sagður hafa bannað Ísraelum að drepa æðstaklerkinn Erlent Lengdist um níu sentímetra og lærði að ganga upp á nýtt Innlent „Lögreglan var ekki að gera það í fyrsta sinn“ Innlent Hlupu frá Danmörku til Svíþjóðar Erlent „Svo bakkarðu upp að línu og þenur drusluna“ Innlent Fresta leit að Sigríði Innlent Rukkuð um hundrað þúsund fyrir stutta ferð frá flugvellinum Innlent Umræða um bókun 35 taki ekki tíma frá öðrum málum Innlent Skýrsla tekin af frönsku konunni og búið að ræða við vitni Innlent Börnin heim eftir meiriháttar vandræðagang Innlent Fleiri fréttir Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Bjart og milt peysuveður Glittir í endurkomu sumarsins Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Áframhaldandi norðan strekkingur Óveðrinu slotar en áfram hætta á skriðuföllum Grjóthrun á Siglufjarðarvegi og skriðufall í Neskaupstað Það versta yfirstaðið en veður áfram leiðinlegt á morgun Vaktin: Ekta sumarhret leikur landann grátt Skriðuhætta geti skapast á ólíklegum stöðum Lýsa yfir óvissustigi vegna veðurs Höfuðborgarsvæðið bætist í hópinn Lægð nálgast sem dýpkar ört Rigning í dag og svo von á júníhreti Breytileg átt og skúrir á víð og dreif Skin og skúrir í dag Hægviðri og lítilsháttar væta Víða skýjað, væta og hiti að þrettán stigum Áfram norðanátt og sums staðar strekkingsvindur Rigning í kortunum Hitabylgjan sú mesta í maímánuði svo vitað sé Skýjað og sums staðar blautt Reikna með talsverðri rigningu austantil Varað við snörpum hviðum Sjá meira