Smánin tilheyrir geranda en of oft klínt á þolanda Matthildur Björnsdóttir skrifar 17. mars 2025 18:01 Sem sýndi hegðun og virðingarleysi við konur sem lengi voru þó líka viðhorf trúarbragða og við erum að sjá að loða enn við í kerfum laga þjóða. Það var mikil almenn upplyfting í að lesa ákvörðun frönsku konunnar Gisele Pelicot sem náði að hafa þá innri styrks meðvitund, til að gera það sem á þessu máli í dag er kallað að „Skila skömminni“ í viðtali í tímaritinu „Womens Weekly“ sem kom út hér í Ástralíu um mánaðamót febrúar mars. Það kom fyrst út einu sinni í viku, en kemur nú út, einu sinni í mánuði. Þar er í þetta sinn, viðtal við og sögu Gisele Pelicot sem var kynferðislega misnotuð á hræðilegan hátt af manni sínum, sem sá um fjölnauðganir á henni í langan tíma. Gerði hana meðvitundarlausa, og gaf ótal mönnum aðgang að kynfærum hennar og líkama í mörg ár eins og hugsanlega flestir Íslendingar vita. Var sú hegðun manns hennar kannski frá viðhorfum hugsanlega frá langtíma niðurleka fornra viðhorfa til kvenna? Hún fékk þann stórkostlega gagnlega algeran sannleiks innblástur að hún ætti ekki sökina. Og sendi það skilaboð út til þolenda heims. Þarna birtist karlveldið í sínu hábilaðasta geðveikasta formi sem hægt er að hugsa sér, og trúarbrögðin hafa í raun átt sinn hlut í að leyfa, og ýta undir með að tala þannig að slíkt væri alltaf konunni að kenna. En um aldir var hegðun og viðhorf yfirvalda trúarbragða og yfirvalda með ofuráherlsu á mikilvægi rökhyggjunnar einnar í raun mikill gerandi. Kenna konum um sektina, svo að karlkyn gæti haldið áfram iðju sinni án þess að orkuleðju smánar væri klínt á þá, og að þeim. Hvernig sköpun setti getnaðarfærakerfin upp, skapar oft mikið ójafnvægi. Þegar sum dýr á jörðu hafa meiri jafnræði í að fjölga sér. Nú er þó byrjað að lyfta þakinu af þögguninni um allt slíkt og sóðaskapurinn að fá birtingu. Sögurnar sem trúarbrögðin komu með í langan tíma, í raun um aldir, um þessi líffæri voru ekki byggðar á viðtölum presta við þegna sína, né innsæi frá eigin líkömum karla um sín getnaðarfæra líffæri. Hvað þá að þeir ættu samtöl við konur um það í sínum líkömum. Hugsun sem er ekki hægt að skilja eða túlka á annan hátt en að þau hafi verið ætluð til að hafa mikil völd yfir konum. Völd sem eru enn í gangi víða um heim, og enn á ýmsan hátt á Íslandi eins og sést á fréttum á blöðunum, þrátt fyrir lög og annað til að tryggja jafnan rétt. Það atriði, er eins og þetta með öndun. Að í smátíma sé það hægt fyrir konur að lifa og anda að sér tilfinningu um að hafa þann rétt. En svo kemur hið þunga ský dökkrar orku karlveldis aftur niður, og það með öll sín áhrif til að halda völdum sínum. Það var og er næstum enn eins og karlveldið hafi ákveðið fyrir mörgum öldum síðan að smánin sé eingöngu ætluð kvenkyni. Það er samt ekki endilega alltaf bara um kynlíf og misnotkun á kynfærum kvenna. Grein á Vísi í dag 10.mars 2025 um vonbrigði varðandi dóm í heimilisofbeldi þar sem konan sem þolandi dó af völdum misnotkunar karlsins, er talandi dæmi um þetta á Íslandi. Landi sem virðist því miður ekki frekar en ótal þjóðir endurskrifað lög sem snerta tilfinningar, glæp án vitna eða ætlun í heimilis-ofbeldi. Hvað þá að skipa fólki að giftast hvert öðru þegar þau sem einstaklingar höfðu það ekki í huga þó að þau hafi leyft sér smástund í kynlífi. Þau ósýnilegu atriði í svo mörgum málum eru eins og lagterta Hér nota ég dæmisögu atriða sem ég þekki Þar sem gerandi er kerfi stjórnar landsins Fjarlægðin frá sumum atvikum í rás tímans, á það til að veita sýn sem var ekki möguleg þá. Virkar stundum líkamlega eins og þetta með skjöl yfirvalda sem mátti ekki opna fyrr en eftir áratugi. Frá viðhorfum sem voru gegn tilfinningum og tilfinningasemi. En vilhöll til að krefja einstaklinga til að lifa formúlu sem allir ættu að lifa. Reynsla fósturs í móðurlífi sem það skynjar að sé ekki velkomið. Og læknir hér sagði í viðtali fyrir mörgum árum síðan. Konan sem það barn var um borð í var send í smánar felur. Það bætti svo við meiru af mengaða taugakerfinu eins og fræðingar skilja í dag. Barnið kom svo öfugt í heiminn í skrifstofu afa síns eftir 72 tíma vegna smánar. Þá voru ekki nærri allar konur með það sjálfstraust eða meðvitund, til að senda skömmina til stofnunarinnar eða karlmannsins, og svo líka samfélagsins, ættingja sem annarra. Afla sem tók það sem skyldu sýna, að dæma þá konu. Trúarleiðtogar og samfélag sem klíndi niðurlægjandi orku smánar í orkuhjúpa hennar. Þegar ó-óskaðar afleiðingar frá að leyfa sér að hlýða kalli líkamans til smá unaðar, kom með afleiðingum sem konan var harðlega dæmd fyrir. En hvernig viðhorf karlmaðurinn fékk heyrðist ekkert orð um. Ef eitthvað sáu sumir það sem heiður hans að hafa tekist að skilja sæði eftir þar. Engin smán kom í áttina að honum. Hvort að einhverjir hafi gefið sjálfum sér skömm veit ég ekki. Hin snilldarlega en óholla þöggunar aðskilnaðar stefna Fyrir einstaklinga sem voru neydd til að segja já við altari, og það án þess að spyrja þau einu sinni hvað þau hefðu haft í huga um líf sitt eftir að valda getnaðinum. Þá skapaði það allt annarskonar dæmi, en er þegar einstaklingarnir höfðu það plan að ætla að lifa lífum sínum saman til enda ævinnar. Það barn, sá getnaður sem setti öll spennandi plön um hið frjálsa líf sitt út, varð þá hin eilífa áminning þeirra um að hafa ekki hugsað betur þá. Löngu fyrir daga góðra getnaðarvarna. Og ekki allir karlar notuðu smokka. Þetta barn pissar svo undir í mörg ár, en man bara eftir því frá um það bil rúmlega tíu ára aldri. Ekkert er gert til að enda það erfiða ástand. Ekki talað um það, og barnið ekki tekið til læknis með sérgrein í slíku ástandi. Svo gubbar barnið oft á nóttunni í þrjú ár. Sem var niðurlægjandi viðbót við að pissa undir. Ástand með óþekktri ástæðu. En gubbið myndi ábyggilega hafa verið frá langtíma bældum taugum. Það athyglisverða við ælu nætur var að þá var faðirinn sendur inn í herbergið hennar um morguninn. Hann þreif æluna upp og gaf henni frí í skólanum þann daginn. Það ferli varðandi gubbið og að hann sæi um það, varð að dularfullri spurningu seinna. Hvað hafði skapað það? Þegar konan hafði alltaf séð um að vekja hana fyrir skólann. Það er mjög athyglisvert og forvitnilegt að velta fyrir sér öllum þessum árum síðar. Pissið undir endaði ekki fyrr en hún kom á fermingaraldurinn. Bergmál og hið sterka tómarými tilfinninga um slíkt. Viðhorf frá langtíma bældri sorg yfir að hafa ekki fengið að lifa þann starfsframa sem þau höfðu ætlað sér, sat alltaf í kerfunum eins og í undirheimi. Hegðun var þegjandi en sterkt drif-afl í skapa andrúmsloft aðskilnaðarstefnu foreldra frá því sem var í hverju barni við hvert annað. Hegðun sem var hugsanlega jafn mikið frá undirvitund sem rökhyggju. Það er staðreynd sem er svakalega sérkenilegt að átta sig á og hugsa um seinna og að vita ekkert um þessi líkamlegu atriði í þeim yngri systrum á heimilinu. Það var aldrei neitt slíkt rætt. Né hvort hinar hefðu pissað undir, eða gubbað á nóttunni, af engum þekkjanlegum ástæðum, eða engri pest. Eins og var með hana. Þetta óvelkomna barn byrjaði svo mikið seinna á túr, en aðrar stelpur. Það var annað af atriðum áhrifa frá röntgengeislum vegna áhrifa röntgenmynda tekna út af mjöðm sem hafði farið úr liði í fæðingu. Hún lærði það löngu síðar. Og önnur innri líkams þroska ferli seinkuðu því auðvitað líka. Blæðinga sagan varð sú undarlega saga um að geta ekki talað um slíkt. sem kom þannig út að nærföt voru þvegin í baðherberginu á kvöldin en sængurföt á morgnana og hvorutveggja hengt upp þar. Engin leið í þeirri þögn og áhugaleysi foreldra að spyrja um ástæður þess að það væri hengt upp þar, eða tala. Svo að eftir margar vikur af slíku þegar hún var sautján ára á leið til vinnu, en fann að það væri að fara að líða yfir sig, svo að hún fór heim. Pabbinn kom heim og þá vissi hún að hún yrði að segja honum að það þyrfti að mæla í henni blóðið. Þá lærðist að blóðmagnið var komið niður í 45 stig, næstum blædd út og hún geymd á spítala í sjö vikur árið 1964. Þá fyrst var það skoðað af hverju og hún fór á þau skjaldkyrtilslyf sem hún hefði átt að vera á frá því eftir tímanum á spítala sem ungbarn af því að röntgengeislar höfðu hægt á ýmsu í kerfunum. Það eru engar minningar um að neitt um atriði þess sem fyrsta barnið upplifði hafi orðið umræðuefni á heimilinu. Það sama viðhorf og hegðun hefðu líka verið um allskonar kynferðislega sem aðra slæma meðferð sem foreldrar veittu börnum sínum, af hvaða ástæðum sem það hafi verið. Bók Charles Spencer sem ég er nýbúin að lesa. Ég ákvað að kaupa hana eftir að sjá að hann hafði farið til Íslands með hana fyrir bókahátíð. Bók sem segir sérkennilega dökka sögu um að samfélög voru í einskonar þegjandi samkomulagi um hryllilega meðferð á börnum. Þessi atriði eru líka öll meira og minna frá langtíma neikvæðum viðhorfum til tilfinninga og tilfinningasemi sem réðu ansi miklu á þeim árum. Gerendur voru því í raun ansi margir og enginn verið kærður á þeim tímum. Harkan ein, harkan plús dýrkun á rökhyggjunni einni átti að gilda og þannig átti að reka samfélögin. En án þess að orða leyfi fyrir grimmdina. Vöggustofu málið og önnur um grimmd til barna segja næg dæmi um þau viðhorf. Þetta var auðvitað frá blöndu af vonbrigðum yfir frekju yfirvalda, snobbs, og svo auðvitað þekkingarleysi um mikilvægi kærleiksríkra tilfinninga sem eru grunnþörf barna sem allra mannvera. Svo að þar er „Gerandinn líka trúarleg sem og stjórnmálaleg yfirvöld“. Það er kominn timi á að haft sé nógu hátt um það sem sé líka einskonar margra alda samþykkis viðhorf og trú sem sitji enn í sumum karlmönnum, sem gerir samfélög meðvirk. Gisele Pelicot kallaði á endi á í eigin sögu. Höfundur er Íslendingur sem hefur verið búsettur í Ástralíu um langt skeið. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Matthildur Björnsdóttir Mest lesið Flokkur fólksins eða flokkun fólksins? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir Skoðun Hver ætlar að bera ábyrgð á mannslífi? Sævar Þór Jónsson Skoðun Íslendingar flytja út fisk og líka ofbeldismenn Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Er útlegð á innleið? Reyn Alpha Magnúsdóttir Skoðun Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 2/3 Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skólarnir lokaðir - myglan vinnur Guðmundur Þórir Sigurðsson Skoðun Horfumst í augu Kristín Thoroddsen Skoðun Börn á flótta – nýtt líf, nýtt tungumál og nýtt tækifæri í íslenskum grunnskólum Friðþjófur Helgi Karlsson Skoðun 30 silfurpeningar dýralækna? 125.000 lítrar af blóði tappaðir af 4088 merum (með valdi), af eiðsvörðum dýralæknum, 2023 Ole Anton Bieltvedt Skoðun Lægjum öldurnar Halla Hrund Logadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er útlegð á innleið? Reyn Alpha Magnúsdóttir skrifar Skoðun Leiðsögundurinn Gaur gerir mig að betri manneskju Þorkell J. Steindal skrifar Skoðun Börn á flótta – nýtt líf, nýtt tungumál og nýtt tækifæri í íslenskum grunnskólum Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar Skoðun Skólarnir lokaðir - myglan vinnur Guðmundur Þórir Sigurðsson skrifar Skoðun Flokkur fólksins eða flokkun fólksins? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 2/3 Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hver ætlar að bera ábyrgð á mannslífi? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Horfumst í augu Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun 30 silfurpeningar dýralækna? 125.000 lítrar af blóði tappaðir af 4088 merum (með valdi), af eiðsvörðum dýralæknum, 2023 Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Opið bréf til heilbrigðisráðherra: Iðjuþjálfar – mikilvægur mannauður í geðheilbrigðisþjónustu framtíðarinnar Erna Rut Elvarsdóttir,Lilja Logadóttir, Rebekka Lind Hjaltadóttir,Sandra Dís Sigurðardóttir skrifar Skoðun Saga Israa á Gaza og hvernig hægt er að verða að liði Katrín Harðardóttir,Israa Saed skrifar Skoðun Fordómar frá sálfélagslegu sjónarhorni Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Er aldur bara tala? Teitur Guðmundsson skrifar Skoðun Íslendingar flytja út fisk og líka ofbeldismenn Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Iðjuþjálfar í leik- og grunnskólum: Tækifæri í baráttunni gegn agavanda og skólaforðun Hekla Björt Birkisdóttir,Hrefna Dagbjört Arnardóttir,Inga Fríða Guðbjörnsdóttir,Íris Kristrún Kristmundsdóttir skrifar Skoðun Frans páfi kvaddur eða meðtekinn? Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Lægjum öldurnar Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Að hata einhvern sem þú þarft á að halda? Katrín Pétursdóttir skrifar Skoðun Íslenskar pyndingar Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun SFS, Exit og norska leiðin þeirra Jón Kaldal skrifar Skoðun Friður - í framsöguhætti eða viðtengingarhætti? Bryndís Schram skrifar Skoðun Næringarfræði er lykillinn að betri heilsu, viltu vera með? Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Löngu þarft samtal um hóp sem gleymist! Katarzyna Kubiś skrifar Skoðun Menntun fyrir öll – nema okkur Haukur Guðmundsson skrifar Skoðun Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessum veruleika Davíð Bergmann skrifar Skoðun Kirkjugarðsballið: Eiga Íslendingar að mæta þar? Birgir Dýrfjörð skrifar Skoðun Að sækja gullið (okkar) Þröstur Friðfinnsson skrifar Skoðun Til hamingju blaðamenn! Hjálmar Jónsson skrifar Skoðun Stormur í Þjóðleikhúsinu Bubbi Morthens skrifar Skoðun Börn í skugga stríðs Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Sjá meira
Börn á flótta – nýtt líf, nýtt tungumál og nýtt tækifæri í íslenskum grunnskólum Friðþjófur Helgi Karlsson Skoðun
30 silfurpeningar dýralækna? 125.000 lítrar af blóði tappaðir af 4088 merum (með valdi), af eiðsvörðum dýralæknum, 2023 Ole Anton Bieltvedt Skoðun
Skoðun Börn á flótta – nýtt líf, nýtt tungumál og nýtt tækifæri í íslenskum grunnskólum Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar
Skoðun 30 silfurpeningar dýralækna? 125.000 lítrar af blóði tappaðir af 4088 merum (með valdi), af eiðsvörðum dýralæknum, 2023 Ole Anton Bieltvedt skrifar
Skoðun Opið bréf til heilbrigðisráðherra: Iðjuþjálfar – mikilvægur mannauður í geðheilbrigðisþjónustu framtíðarinnar Erna Rut Elvarsdóttir,Lilja Logadóttir, Rebekka Lind Hjaltadóttir,Sandra Dís Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Iðjuþjálfar í leik- og grunnskólum: Tækifæri í baráttunni gegn agavanda og skólaforðun Hekla Björt Birkisdóttir,Hrefna Dagbjört Arnardóttir,Inga Fríða Guðbjörnsdóttir,Íris Kristrún Kristmundsdóttir skrifar
Börn á flótta – nýtt líf, nýtt tungumál og nýtt tækifæri í íslenskum grunnskólum Friðþjófur Helgi Karlsson Skoðun
30 silfurpeningar dýralækna? 125.000 lítrar af blóði tappaðir af 4088 merum (með valdi), af eiðsvörðum dýralæknum, 2023 Ole Anton Bieltvedt Skoðun