„Gott að koma inn á og fá nokkrar mínútur“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 11. febrúar 2025 23:01 Ísak skoraði eitt mark og gaf tvær stoðsendingar. vísir / pawel Ísak Gústafsson sneri aftur í lið Vals í kvöld, í 33-26 sigri gegn FH. Hann hefur verið frá síðustu mánuði vegna meiðsla en segir hnéð núna í „toppmálum.“ Einbeiting hans er núna öll á toppbaráttunni sem Valur er í, þó skiptin til Danmerkur í sumar séu spennandi. „
Við fundum okkur mjög vel í seinni hálfleik bæði varnar- og sóknarlega. Vorum góðir í sókn í fyrri hálfleik en ekki alveg nógu góðir í vörn. Þeir voru að taka stöðuskot á okkur sem að Bjöggi sá seint og náði þá ekki að verja, en í seinni hálfleik fannst mér við stíga vel upp varnarlega. Gerðum það mjög vel,“ sagði Ísak fljótlega eftir leik. Ísak var í leikmannahópnum í síðasta deildarleik gegn KA, en spilaði ekkert. „Þá vorum við bara ennþá að koma mér í stand og ég þurfti ekkert að spila, sem var bara fínt. En flott í dag, gott að koma inn á og fá nokkrar mínútur. Komast hægt og rólega inn í þetta,“ sagði Ísak um meiðslin sem hann er að snúa aftur úr. Hann reif liðþófa og var frá síðustu fimm leiki en er búinn að jafna sig og segir hnéð núna í „toppmálum.“ Atvinnumennskan í sumar Það eru ekki einu fréttirnar af Ísaki. Greint var frá því fyrr í dag að Ísak væri á leið út í atvinnumennsku í sumar, til TMS Ringsted í Danmörku. „Það leggst mjög vel í mig. Skemmtilegt verkefni að fara í gang þar en maður er búinn að setja það undir koddann núna í bili. Einbeitingin er sett á að klára þetta tímabil með Val með stæl. Þetta leggst allt vel í mig.“ „Það þýðir ekkert annað“ en að vera með fullan fókus á toppbaráttuna, sagði Ísak að lokum.
Olís-deild karla Valur Mest lesið Ronaldo flogið til Spánar og staðan verri en talið var Fótbolti Í fyrsta sinn á Íslandi: Kolbeinn mætir austurrískum rotara í Gamla bíó Sport „Ég hef ekkert að sanna“ Enski boltinn Fastur í Ísrael og leitar skjóls í neðanjarðarbyrgjum Handbolti Íhuga brottrekstur eftir minna en mánuð Enski boltinn Jóhann heim til Íslands heilu og höldnu Fótbolti Robertson sá um að hefna Fótbolti Utan vallar: Græðgi undir hatti heilsu Fótbolti Dómari sleginn niður í kvennaleik Körfubolti „Minnti á köflum á leik í minnibolta“ Körfubolti Fleiri fréttir KA upp um tvö sæti með algjörum risasigri Fastur í Ísrael og leitar skjóls í neðanjarðarbyrgjum Viktor fagnaði fyrsta sigrinum gegn félögum sínum í Magdeburg „Ég er bara ekki nógu gáfaður til að geta rýnt almennilega í þessa stöðu“ Skoruðu tvö á síðustu mínútu og fóru upp fyrir Hauka Árið enn fullkomið hjá sveinum Guðjóns Vals Markaveisla þegar ÍBV vann silfurstrákana Uppgjörið: Valur - Fram 27-35 | Meistararnir fóru illa með toppliðið Elín Klara fékk tíu af tíu mögulegum fyrir frammistöðuna Landsleikirnir við Svía ekki í Laugardalshöll Tvær landsliðskonur urðu eftir heima vegna höfuðhögga Færeyingar unnu sterkan varnarsigur gegn Portúgal „Ógeðslega gaman og ég er ógeðslega ánægð með allar“ „Að vera í þessum íþróttum er stanslaus þjáning“ Engin bikarþynnka hjá Haukum „Það var engin hætta“ Uppgjörið: Ísland - Svartfjallaland 28-27 | Fyrstu stigin komu gegn toppliðinu Norðmenn skipta út landsliðsþjálfaranum sínum „Mér finnst við eiga mikið inni“ Átta ára hark á enda „Við ætlum að spóla upp þessa brekku“ Þorsteinn Leó með sigurmark á lokasekúndunum Einar Bragi öflugur í mikilvægum Evrópusigri Elliði í liði umferðarinnar eftir mörkin níu gegn Kiel Fleiri breytingar á landsliðinu: Alexandra kemur inn fyrir Ölfu „Leiðinleg tímasetning á þessum meiðslum“ Sigurinn dæmdur af Hauki og félögum því undirskrift vantaði Sonja Lind inn í hópinn fyrir barnshafandi Þóreyju Önnu Skellur fyrir bankabók HSÍ Frábær frammistaða Hauks dugði skammt Sjá meira