Slóvenía bíður Íslands en ballið búið hjá heimakonum Sindri Sverrisson skrifar 2. desember 2024 18:39 Slóvenar stöðvuðu heimakonur sem eru úr leik á EM, eftir tap í Innsbruck í kvöld. EHF EURO 2024 Evrópumót kvenna í handbolta heldur áfram, að stórum hluta í Austurríki, án þess að austurríska landsliðið verði með því það er úr leik eftir tap gegn Slóveníu í kvöld.
Keppni lýkur í þremur riðlum í kvöld og er nú þegar ljóst að það verða Slóvenar sem fylgja norsku stelpunum hans Þóris Hergeirssonar upp úr E-riðli. Sigur Slóveníu gegn Austurríki í kvöld var þó tæpur, eða 25-24, eftir að Austurríki hafði til að mynda komist í 23-22 þegar skammt var eftir. Heimakonur skoruðu hins vegar bara eitt mark á síðustu níu mínútum leiksins. Austurríki og Slóvakía sitja því eftir í riðlinum og ljóst að margir eru vonsviknir í Innsbruck í kvöld, bænum þar sem Ísland verður á ferðinni á morgun í leiknum mikilvæga við Þýskaland. Slóvenía og Noregur bíða því sigurliðsins úr leik Íslands og Þýskalands í milliriðlakeppninni, en í þeim milliriðli verða einnig Holland og tvö lið úr D-riðli sem klárast á morgun. Pólland sló Spán úr leik Pólland skildi Spán eftir í C-riðli með 26-23 sigri í leik liðanna, og fylgir því Frakklandi áfram í milliriðlakeppnina. Örlög Norður-Makedóníu sem neðsta lið A-riðils réðust svo endanlega með risatapi, 29-19, gegn Ungverjum sem höfðu þegar tryggt sig áfram í milliriðlakeppnina. Svíum dugar að vinna eða gera jafntefli við Tyrkland í kvöld til að fylgja Ungverjum upp úr riðlinum.
EM kvenna í handbolta 2024 Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Fleiri fréttir Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Sjá meira