Stelpur Þóris fóru illa með fyrsta mótherja Íslands Sindri Sverrisson skrifar 23. nóvember 2024 14:08 Þórir Hergeirsson og hans konur á hliðarlínunni, á Gullmótinu í Danmörku. EPA-EFE/Bo Amstrup Norska kvennalandsliðið í handbolta, undir stjórn Þóris Hergeirssonar, vann stórsigur gegn sterku liði Hollands í dag, á æfingamóti fyrir Evrópumótið sem brátt fer að hefjast.
Hollendingar, sem urðu í 6. sæti á síðasta EM og í 5. sæti á HM fyrir ári síðan, eru fyrstu mótherjar Íslands á EM en liðin mætast næsta föstudag í Innsbruck í Austurríki. Þetta heimsmeistaralið frá árinu 2019 átti engin svör við leik Noregs í seinni hálfleik í dag, eftir góða byrjun í leiknum. Holland var raunar tveimur mörkum yfir í hálfleik, 14-12, en í seinni hálfleiknum skoraði liðið aðeins sjö mörk gegn 21 marki frá stelpunum hans Þóris sem unnu því stórsigur, 33-21. Noregur gerði 27-27 jafntefli við heimakonur í Danmörku í fyrsta leik sínum á þessu æfingamóti, sem kallað er Gulldeildin, og lýkur mótinu með leik við Rúmeníu á morgun. Fyrsti leikur Noregs á EM er svo við Slóveníu á fimmtudaginn, en riðill Noregs er spilaður á sama stað og riðill Íslands, í Innsbruck. Holland mætir Danmörku á morgun, þegar Ísland spilar seinni leik sinn við Sviss, áður en leikur Íslands og Hollands fer svo fram á föstudaginn. Í riðli þeirra á EM eru einnig Þýskaland og Úkraína.
EM kvenna í handbolta 2024 Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Körfubolti Fleiri fréttir KA - Afturelding | Þurfa sigur til að halda í við toppliðið Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför Sjá meira