„Laxaastmi“ tekinn alvarlega fyrir vestan Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 4. október 2024 10:31 Stein Ove Tveiten forstjóri Arctic Fish, Kristján Rúnar Kristjánsson framkvæmdastjóri Í Laxavinnslunni Drimlu og Gauti Geirsson framkvæmdastjóri Háafells. Arctic Fish sér um slátrun á öllum laxi Háafells í laxavinnslu Arctic Fish í Bolungarvík. Arctic Fish Framkvæmdastjóri laxavinnslu hjá Arctic Fish í Bolungarvík segir öndunarfærasjúkdóma líkt og „laxaastma“ vera raunverulegt vandamál í sjávarútvegi sem forsvarsmenn fyrirtækisins taki alvarlega. Hann segir að í sláturhúsi fyrirtækisins sé heilsa og vellíðan starfsmanna í fyrirrúmi.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í yfirlýsingu Kristjáns Rúnars Kristjánssonar rekstrarstjóra Arctic Fish laxeldisfélags á Vestfjörðum. Tilefnið er umfjöllun norska ríkisútvarpsins sem Vísir greindi frá í gær þar sem fram kemur að norskir læknar séu áhyggjufullir yfir stöðu mála vegna alvarlegra öndunarfærasjúkdóma hjá starfsfólki sem vinnur við slátrun og pökkun á eldislaxi í Noregi. Fyrirbrigðið hefur hlotið viðurnefnið „laxaastmi“ og hlýst af því þegar andað er að sér vatnsúða sem inniheldur örsmáar agnir af laxaholdi, bakteríum og aðra vessa úr laxinum. Vandamálin séu ekki bundin við laxeldi „Laxeldi á Íslandi hefur verið undir smásjá fjölmiðla og því fylgja oft neikvæðar fréttir. Vissulega hafa komið upp atriði sem vert er að gagnrýna, en það er líka margt jákvætt að gerast í greininni sem hefur fengið minni athygli,“ segir Kristján í yfirlýsingu sinni. „Við teljum mikilvægt að þegar greinar eins og þessi koma fram, séu þær settar í rétt samhengi og ekki gerðar að „click bait“ fréttum til að uppfylla þarfir þeirra sem eru andvígir fiskeldi fyrir neikvæðar fyrirsagnir. Það er brýnt að miðla heildarmyndinni, þar sem bæði áskoranir og lausnir eru ræddar á sanngjarnan hátt.“ Hann tekur fram að öndunarfæravandamál líkt og fjallað sé um af NRK sé raunveruleg áskorun sem tekið sé alvarlega. Kristján segir vandamálin þó alls ekki bundin við laxeldi. „Heldur tengjast þau þeim vinnuaðstæðum sem ríkja í sjávarútvegi almennt. Hvort sem verið er að vinna með eldislax, villtan lax, þorsk, síld eða rækju þá geta öndunarfærasjúkdómar komið upp vegna svifagna eins og próteina úr fiski, örsmárra vatnsdropa í loftinu, raka og lágs hitastigs í vinnslustöðvum. Þessi umhverfisáhrif geta leitt til ertingu í öndunarfærum eða ofnæmisviðbragða hjá næmum einstaklingum.“ Sé fjórum sinnum algengara í rækjuvinnslu Kristján segir rannsóknir sýna að þetta sé algengt vandamál í sjávarútvegi almennt, ekki bara vinnslu á laxi. Þá vísar hann til rannsóknar frá Aalborg háskóla þar sem komið hafi fram að tíu prósent starfsmanna í sjávarútvegi á Grænlandi hafi þjáðst af astma tengdum starfinu. Þar sé ekki unninn lax heldur krabbi, rækja og grálúða. Það sýni að öndunarfæraáhrif í sjávarútvegi séu ekki einangruð við vinnslu á lax úr eldi. „Einnig er vert að nefna eldri rannsókn frá Háskólasjúkrahúsinu í Tromsø frá árinu 2002, sem sýndi að öndunarfæravandamál voru mun algengari hjá starfsfólki í rækjuvinnslustöðvum og en í laxavinnslustöðvum. Ofnæmisviðbrögð voru fjórum sinnum algengari í rækjuiðnaðinum og tvöfalt algengari í hvítfiskvinnslu miðað við laxavinnsluna,“ skrifar Kristján. „Önnur rannsókn frá árinu 2015 sem var birt í International journal of occupational and environmental health bar saman hversu algengur astmi var meðal starfsfólks í laxavinnslu og sjómanna á frystitogurum. Niðurstaða rannsóknarinnar var að öndunarfæravandamál voru meira en tvöfalt algengari meðal togarasjómannana en hjá þeim sem vinna unnu í laxvinnslum.“ Hann segir mikilvægt að skilja að öndunarfærasjúkdómar og astmi tengdir starfi séu ekki bundnir við sjávarútveginn. Heilbrigðisyfirvöld í Bandaríkjunum hafi tekið saman tölur um tíðni astma eftir starfsgreinum árið 2013 og samkvæmt því sem þar komi sé astmi algengastur hjá starfsfólki í heilbrigðisþjónustu. Loftgæði í Bolungarvík í fyrirrúmi „Greinin vekur athygli á raunverulegu vandamáli í sjávarútvegi, sem við tökum alvarlega. Með réttum aðgerðum er hægt að draga verulega úr líkum á því að starfsfólk verði fyrir óþægindum sem þróast út í astma. Í sláturhúsi Arctic Fish, Drimlu, er heilsa og vellíðan starfsmanna í fyrirrúmi,“ skrifar Kristján. „Þetta var haft í huga við byggingu vinnslunnar í Bolungarvík og því var fjárfest í mjög öflugu loftræstikerfi til að tryggja loftgæði með því að stýra rakastigi, hitastigi og loftflæði. Þessar mótvægisaðgerðir draga úr magni svifagna í loftinu og stuðla þannig að betra og heilbrigðara vinnuumhverfi. Hjá Arctic Fish erum staðráðin í að tryggja öruggt og heilbrigt vinnuumhverfi fyrir okkar starfsfólk og munum áfram fjárfesta í kerfum og starfsháttum sem vernda heilsu þeirra.“
Lax Fiskeldi Bolungarvík Mest lesið Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Innlent Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Erlent Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Erlent Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Innlent Kourani farinn úr landi Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Innlent Fleiri fréttir Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Sjá meira