Stofnandi Telegram ákærður fyrir glæpastarfsemi á miðlinum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 29. ágúst 2024 06:25 Durov er búsettur í Dúbaí, þar sem einnig er að finna höfuðstöðvar Telegram. Getty/Steve Jennings Pavel Durov, annar stofnenda samfélagsmiðilsins Telegram hefur verið ákærður í Frakklandi fyrir að grípa ekki til aðgerða til að koma í veg fyrir glæpastarfsemi á miðlinum.
Durov, sem er fæddur í Rússlandi en með ríkisborgararétt í Frakklandi, var handtekinn á flugvelli fyrir utan París síðustu helgi, þar sem hann lenti þrátt fyrir að handtökuskipun hefði verið gefin út á hendur honum. Hann er meðal annars ákærður fyrir aðild að dreifingu barnaníðsefnis á Telegram og fjölda annarra brota. Durov hefur verið látinn laus gegn tryggingu. Notendur Telegram eru um 950 milljón talsins en samfélagsmiðillinn hefur verið mikið notaður í umræðu um stríðið í Úkraínu. Handtaka Durov hefur vakið mikla umræðu um ábyrgð stjórnenda samfélagsmiðla, sem hafa löngum verið notaðir af glæpamönnum, meðal annars til að dreifa ólöglegu efni og stunda ólögleg viðskipti. Það er afstaða Telegram að það sé ekki hægt að sækja Durov til ábyrgðar fyrir gjörðir annarra en aðrir benda á að samfélagsmiðlarnir, sem margir velta milljörðum og hafa gert eigendur sína moldríka, ættu að axla ábyrgð þegar þeir gera ekki nóg til að koma í veg fyrir að glæpastarfsemi þrífist á miðlunum.
Frakkland Samfélagsmiðlar Erlend sakamál Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Erlent Fleiri fréttir „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Sjá meira