Hjólakeppnin Grefillinn nýtur sífellt meiri vinsælda TRI 16. ágúst 2024 08:31 Hjólakeppnin Grefillinn fór fram síðasta laugardag í blíðskaparveðri. Hér má sjá nokkra keppendundur í 200 km Pro/Elite karlaflokknum. Fremstur er Ingvar Ómarsson sem sigraði keppnina og fjórði í röðinni er Þorsteinn Bárðarson sem endaði í öðru sæti. Myndir/Grefillinn. Hjólreiðakeppnin Grefillinn fór fram síðasta laugardag. Þetta er fjórða árið í röð sem keppnin er haldin en um er að ræða svokallað gravel mót en þá er hjólað á malarvegum.
Keppnin fór fram í Borgarfirði og Kaldadal en rásmark og endamark var í Logalandi sem er rétt um 103 km frá höfuðborgarsvæðinu. Þrjár vegalengdir voru í boði, 45, 100 og 200 km þar sem hjólað var um fjölbreytta náttúru, afskekkt hálendi, sveitavegi og yfir skemmtilegar ár. Andri Már Helgason er annar mótsstjóra keppninnar og meðlimur í mótanefnd hjólreiðadeildar Breiðabliks. „Það hefur verið mikill vöxtur erlendis og hérlendis í þessum flokki þar sem keppendur eru að hjóla á malarvegum en ekki á malbiki eða fjallastígum,“ segir Andri Már Helgason, annar mótsstjóra keppninnar og meðlimur í mótanefnd hjólreiðadeildar Breiðabliks. „Við héldum fyrstu keppnina árið 2021 en þá höfðum við fundið fyrir miklum áhuga hjólreiðamanna í einhvern tíma. Þessi fyrsta keppni var hálfgerð tilraun en hún heppnaðist mjög vel og í kjölfarið hófum við samstarf með hjólaversluninni TRI, hjólafatamerkinu Castelli sem fæst í TRI og náttúrulauginni Krauma.“ Ári síðar mættu enn fleiri keppendur til leiks en þá var þriðju leiðinni bætt við sem var 45 km og var helst stíluð inn á þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í malarhjólreiðum. Vinsældir keppninnar hafa síðan aukist jafnt og þétt og síðasta laugardag var metþátttaka þegar 180 skráðu sig til leiks. Hugsað sem skemmtilegur viðburður „Gravel hjólakeppnir byggja svolítið á annarri hugsun en götuhjóla- og fjallahjólakeppnir þar sem tímataka skiptir miklu máli og strangt regluverk er í gildi. Gravel keppnir eru sprottnar fram úr grasrótinni og þar er meira lagt upp úr því að hafa gaman enda skiptir tímatakan ekki öllu máli. Undanfarin tvö ári höfum við líka fundið fyrir því að áhuginn á keppnishjólreiðum innan sérsambanda hefur dvínað meðan gravel keppnir njóta sífellt meiri vinsælda.“ Hann segir skipuleggjendur leggja mikla áherslu á að þetta snúist ekki bara um keppni heldur sé keppnin líka hugsuð sem skemmtilegur viðburður. „Síðustu ár höfum við leigt félagsheimilið í Logalandi sem býður upp á tjaldsvæði og við hvetjum keppendur og aðra gesti til að eyða helginni þar með okkur og njóta lífsins. Krauma býður líka öllum keppendum ókeypis ofan í enda er mjög vinsælt að kíkja þangað eftir keppni.“ Helstu úrslit urðu þau að í 200 km Pro/Elite karlaflokki sigraði Ingvar Ómarsson (Breiðablik) en Þorsteinn Bárðarson (Tindur) var í öðru sæti. Í 200 km Pro/Elite kvennaflokki kom Ágústa Edda Björnsdóttir (Tindur) fyrst en Kristín Edda Sveinsdóttir (HFR) var í öðru sæti. Önnur helstu úrslit voru þau að í 200 km Masters 18-44 ára sigruðu Natalía Reynisdóttir (Breiðablik) og Gauti Reynisson (Tindur), í 200 km Masters 45+ sigruðu Valborg Hlín Guðlaugsdóttir (Breiðablik) og Páll Snorrason (Tindur). Í 100 km vegalengdinni sigraði Tryggvi Kristjánsson (Team Kudos) en í kvennaflokki sigraði Björg Hákonardóttir (Breiðablik). Loks voru sigurvegarar í 45 km vegalengdinni þau Sigurbergur Kárason (Snarpur) og Edda Vésteinsdóttir. Önnur helstu úrslit er að finna hér. Veðrið lék við keppendur stærstan hluta dags og bærði varla hár á höfði allan keppnisdaginn. Réttur klæðnaður skiptir öllu máli Í Gravel hjólakeppnum skiptir mjög miklu máli að keppendur séu rétt klæddir enda hjóla þeir iðulega við mjög fjölbreyttar og krefjandi aðstæður. „Keppendur byrja kannski snemma morguns á láglendi í svölu veðri en svo hlýnar smátt og smátt. Seinna í keppninni eru þeir síðan jafnvel komnir upp á hálendið í rok og rigningu. Við slíkar aðstæður er ljóst að réttur fatnaður skiptir gríðarlega miklu máli og hefur hjólafatamerkið Castelli komið mjög sterkt inn en TRI er einmitt umboðsaðili þess hér á landi og býður upp á fjölbreytt úrval í verslun sinni við Suðurlandsbraut í Reykjavík.“
Hjólreiðar Heilsa Mest lesið Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira Lífið Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Lífið Fleiri fréttir Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Sjá meira