Sleginn í rot í hópslagsmálum í miðbænum Jón Þór Stefánsson skrifar 10. ágúst 2024 07:26 Hópslagsmálin áttu sér stað í miðbæ Reykjavíkur. Vísir/Vilhelm Lögreglan var kölluð til vegna hópslagsmála í miðbæ Reykjavíkur í nótt. Eftir slagsmálin var einn einstaklingur líklega nefbrotinn og þá hafði annar verið sleginn í rot. Þrír voru handteknir og vistaðir í fangaklefa vegna málsins.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir jafnframt frá því að við skemmtistaðaeftirlit í miðbæ Reykjavíkur hafi lögregluþjónar tekið eftir einstaklingi sem virtist vera of ungur til að vera inni á skemmtistað. Ungmennið hafi framvísað fölsuðum skilríkjum og reyndist vera undir lögaldri. Fram kemur að málið hafi verið afgreitt með aðkomu barnaverndaryfirvalda og foreldra viðkomandi einstaklings. Óskað var eftir aðstoð lögreglu í umdæmi lögreglustöðvar tvö, sem sér um Hafnarfjörð og Garðabæ vegna einstaklings sem gekk um og sparkaði í bifreiðar. Fram kemur að þegar lögreglu bar að garði bar hún kennsl á einstaklinginn sem hafði ítrekað verið tilkynntur fyrr um kvöldið vegna ölvunarláta. Í dagbókinni segir að ekki hafi verið með neinu móti hægt að tjónka við einstaklingnum sem var þess vegna vistaður í fangaklefa. Í sama umdæmi var ökumaður kærður fyrir að aka á 138 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er áttatíu. Lögreglan segir hann eiga von á sviptingu ökuréttinda.
Reykjavík Lögreglumál Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira