Eldur í einu herbergi í íbúðarhúsnæði á Hallgerðargötu Kjartan Kjartansson og Lovísa Arnardóttir skrifa 8. ágúst 2024 12:19 Slökkvilið reykræstir nú íbúðina en miklar skemmdir urðu í herberginu þar sem eldurinn kom upp. Vísir/Vésteinn Slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu sinnti í hádeginu útkalli vegna elds á Hallgerðargötu í Reykjavík. Tilkynning barst um eld í íbúðarhúsnæði klukkan 12. Slökvistarf gekk hratt og örugglega fyrir sig. Ekki þurfti að flytja neinn á slysadeild.
Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var mikill eldur í einu herbergi og eru þar miklar skemmdir. Nokkrir dælubílar voru sendir á vettvang.Vísir/Vésteinn Ekki er vitað um eldsupptök að svo stöddu. Slökkvilið er búið að slökkva eldinn og vinnur nú að því að reykræsta íbúðina. Að því loknu er vettvangurinn afhendur lögreglu til rannsóknar. Frá vettvangi á Hallgerðargötu.Aðsend „Það kom upp eldur í einu herbergi í íbúð. Staðbundinn við eitt herbergi,“ segir Bernódus Sveinsson varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir alla hafa komist út af sjálfsdáðum og að eldurinn hafi verið nokkuð kæfður þegar slökkvilið kom á vettvang. Viðtal við Bernódus má sjá hér að neðan. Sérsveit bauð fram aðstoð Sérsveit ríkislögreglustjóra var á vettvangi brunans en samkvæmt upplýsingum frá Helenu Rós Sturludóttur, samskiptastjóra ríkislögreglustjóra, var hún nærri vettvangi þegar útkallið var sent út og bauð fram aðstoð sína. Liðsmenn þurftu þó ekki að aðhafast neitt á vettvangi. Slökkvilið við störf.Vísir/Vésteinn Fréttin hefur verið uppfærð.
Reykjavík Slökkvilið Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira