Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Árni Sæberg skrifar 8. maí 2024 14:49 Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, Sólrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Veitna og Einar Þorsteinsson borgarstjóri. Jóhanna Rakel Í dag var skrifað undir samkomulag sem formlega bindur enda á meira en aldarlöng afnot Orkuveitunnar og forvera hennar af Elliðaánum til raforkuvinnslu. Í samkomulaginu er kveðið á um hvernig Orkuveitan muni skila dalnum til borgarinnar um næstu áramót. Jafnframt samdi Reykjavíkurborg við Veitur um brúarsmíð og eflingu umhverfisverndar í dalnum.
Í fréttatilkynningu frá Orkuveitunni segir að Einar Þorsteinsson borgarstjóri, Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, og Sólrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóru Veitna, hafi undirritað samningana í Rafstöðinni við Elliðaár í dag. Svaraði ekki kostnaði að laga rafstöðina Rafstöðin hafi verið tekin í notkun sumarið 1921 en síðast hafi verið framleitt í henni rafmagn árið 2014. Það ár hafi aðrennslispípa virkjunarinnar bilað og verið metin ónýt. Raforkuframleiðsla hafi verið mjög lítil undir það síðasta og ekki hafi þótt svara kostnaði að hefja hana að nýju. Orkuveitan muni áfram reka áningar- og fræðslustaðinn Elliðaárstöð í húsunum við Rafstöðina en í samkomulagi Orkuveitunnar og Reykjavíkurborgar sé meðal annars kveðið á um hvernig staðið verður að niðurlagningu annarra raforkumannvirkja, sem öll séu friðuð. Þá skili Orkuveitan vatnsréttindum, þar með talið veiðirétti, til Reykjavíkurborgar. Ný brú yfir Árbæjarstíflu Í samráði við Minjavernd og Húsafriðunarnefnd muni Orkuveitan láta hanna nýja greiðari gönguleið yfir Árbæjarstíflu. Talsverður hluti stífluveggjarins verði samhliða fjarlægður en elstu hlutar stíflunnar muni standa áfram. Stífluhringurinn, ein fjölfarnasta göngu- og hlaupaleiðin um þetta vinsælasta útvistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, muni þannig halda sér. Komið verði í veg fyrir að hætta stafi af stíflunni í leysingum með því að vatn hætti að safnast við hana og rennsli um hana verði greitt. Jafnframt verði unnið að úrbótum á umferðaröryggi um Rafstöðvarveg, með fram aðrennslispípu virkjunarinnar, með samþættri hönnun fyrir gangandi, hjólandi og akandi umferð. Unnið verði að deiliskipulagi vegna breytinganna á þessu ári. Þá hafi samkomulag tekist um kostnaðarhlutdeild Veitna í byggingu nýrrar brúar í stað hitaveitustokkanna sem lágu þvert yfir dalinn niður af Ártúnshöfða. Hitaveituæðarnar sem voru í stokkunum hafi verið lagðar undir botn Elliðaánna fyrir nokkrum árum og stokkarnir fjarlægðir. Reykjavíkurborg hafi látið hanna nýjar brýr og gönguleið í þeirra stað og Veitur muni greiða um tvo þriðju hluta byggingarkostnaðar. Í tengslum við fyrirhugaðar breytingar á Rofabæ verði einng ráðist í endurbætur frárennslis yfirborðsvatns af götum sem næst liggja Elliðaánum. Blágrænum lausnum verði beitt til að sía óhreinindi úr vatninu áður en það seytlar í farveg Elliðaánna. Veitur, sem reka fráveituna í borginni, muni standa straum af kostnaði við það umhverfisverkefni. Fylgja lögum en líka einstakt tækifæri Í tilkynningu segir að Elliðaárdalur hafi mótast mjög af raforkuvinnslunni, sem þar hófst þegar konungshjón Íslands ræstu fyrstu vélar Rafstöðvarinnar 27. júní 1921. Það hafi svo verið starfsfólk Rafmagnsveitu Reykjavíkur, forvera Orkuveitunnar, sem hóf skógrækt í dalnum 1951, á 30 ára afmæli Rafstöðvarinnar. Þegar raforkuvinnslu er hætt beri virkjunarfyrirtækinu skylda samkvæmt vatnalögum til að færa umhverfi til fyrra horfs sem kostur er. Nú sé Elliðaárdalur ekki holt og mói eins og snemma á síðustu öld heldur vinsælasta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, samkvæmt nýrri könnun Sambands sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. „Það er því einstakt verkefni sem blasir við Orkuveitunni og Reykjavíkurborg að leitast við að uppfylla ákvæði vatnalaganna um leið og staðinn er vörður um minjagildi mannvirkja, útivistargildi dalsins og ekki síst lífríkið í dalnum og ánum, þar sem laxveiði hefur verið stunduð frá alda öðli.“
Reykjavík Orkumál Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira