Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Samúel Karl Ólason skrifar 30. apríl 2024 16:24 Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka. Vísir/Einar Arion banki hagnaðist um 4,4 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Það er nokkur samdráttur sé fjórðungurinn borinn saman við sama tímabil í fyrra, þegar Arion hagnaðist um 6,3 milljarða. Bankastjóri segir afkomuna undir markmiðum.
Kjarnatekjur Arion drógust saman um tvö prósent á ársfjórðungnum og kostnaður sem hlutfall af kjarnatekjum var 48,4 prósent. Hann var 46,8 prósent á fyrsta ársfjórðungi í fyrra. Rúmlega þrettán milljarðar króna voru greiddar í arð á fjórðungnum en það samsvarar níu krónum á hlut. Hagnaður á hlut var 3,07 krónur, samanborið við 4,32 í fyrra. Áhugasamir geta fundið frekar upplýsingar um ársfjórðungsuppgjörið hér. Í yfirlýsingu frá Arion er haft eftir Benedikt Gíslasyni, bankastjóra, að þessi lægri afkoma skýrist fyrst og fremst af lægri þóknanatekjum og háu skatthlutfalli þar sem tap vegna hlutabréfa sem haldið er gegn framvirkum samningum leiðir til 38 prósenta skatthlutfalls á tímabilinu. Eiginfjár- og lausafjárstaða, auk fjármögnun bankans sé sterk. „Við vinnum nú að því að ná markmiðum okkar varðandi hlutfall eiginfjárþáttar 1. Í lok tímabilsins var hlutfallið 18,8 prósent sem er 3,5 prósentustigum yfir kröfum eftirlitsaðila en markmið okkar er að vera 1,5-2,5 prósentustigum yfir þeirra kröfum. Í gangi er endurkaupaáætlun sem er liður í því að færa hlutfallið nær markmiði okkar,“ er haft eftir Benedikt. Benedikt vísar einnig til þess að hægt hafi á umsvifum í efnahagslífinu vegna hárra stýrivaxta. Það hafi meðal annars valdið lægri þóknunartekjum.
Arion banki Fjármálafyrirtæki Mest lesið Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Sjá meira