Annað markaðsleyfi í höfn í Bandaríkjunum Árni Sæberg skrifar 16. apríl 2024 21:31 Róbert Wessman er forstjóri Alvotech. Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur veitt Alvotech markaðsleyfi fyrir Selarsdi (ustekinumab-aekn), líftæknilyfjahliðstæðu við Stelara. Gert er ráð fyrir að Selarsdi komi á markað í Bandaríkjunum um eða eftir 21. febrúar 2025 í samræmi við samkomulag við framleiðanda frumlyfsins Stelara
Í tilkynningu Alvotech til Kauphallar í kvöld segir að Selarsdi sé til meðferðar við miðlungsmiklum og verulegum skellusóra og sóraliðagigt í fullorðnum og börnum sex ára og eldri. Samstarfsaðili Alvotech við sölu og markaðssetningu á Selarsdi í Bandaríkjunum sé Teva Pharmaceutical Industries Ltd.. Annað leyfið á árinu „Markaðsleyfi fyrir Selarsdi, sem er annað markaðsleyfi okkar fyrir líftæknilyfjahliðstæðu á þessu ári, undirstrikar hversu mikla áherslu Teva leggur á að auka framboð, aðgengi og notkun þessara meðferðarúrræða í Bandaríkjunum. Markaðurinn fyrir líftæknilyfjahliðstæður vex ört, jafnt í Bandaríkjunum og um allan heim. Líftæknilyfjahliðstæður eru einnig lykillinn að fyrirhuguðum vexti Teva á næstu árum. Með samstarfinu nýtum við sterka markaðsstöðu og alþjóðlega reynslu til að koma fleiri líftæknilyfjahliðstæðum á markað,“ er haft eftir Thomas Rainey, framkvæmdastjóra markaðsaðgengis fyrir Teva í Bandaríkjunum. Þar vísar Rainey til markaðsleyfis á Simlandi (adalimumab-ryvk) sem líftæknilyfjahliðstæðu við Humira. Þess leyfis hafði verið beðið af mikilli eftirvæntingu og eftirvæntingin var síst minni fyrir leyfi fyrir hliðstæðu við Stelara. Leyfi komið á 38 mörkuðum „Það er okkur mikil ánægja að tilkynna að annað markaðsleyfið í Bandaríkjunum er í höfn. Þar með er líftæknilyfjahliðstæðan við Stelara komin með samþykki á 38 mörkuðum. Þegar Selarsdi kemur á markað í Bandaríkjunum snemma á næsta ári, getum við aukið aðgengi sjúklinga að þessu mikilvæga lyfi við bólgusjúkdómum og stuðlað að minni kostnaði í heilbrigðiskerfinu. Við þróun Selarsdi gat Alvotech nýtt til fullnustu þá fullkomnu aðstöðu sem við höfum byggt til sérhæfingar í þróun og framleiðslu á líftæknilyfjahliðstæðum. Þá auðveldaði það ferlið umtalsvert að geta nýtt sömu frumutegund og aðferð og notuð er við framleiðslu frumlyfsins,“ er haft eftir Róberti Wessman, stjórnarformanni og forstjóra Alvotech. Tekjur af fyrirmyndinni tæp billjón króna Í tilkynningu segir að Ustekinumab sé einstofna mannamótefni, sem hamlar virkni frumuboðefnanna interleukin-12 og interleukin-23, en þau séu mikilvægir þættir í ónæmismiðluðum sjúkdómum, svo sem sóra (psoriasis) og sóraliðagigt. Alvotech hafi þróað og framleiði Selarsdi í Sp2/0 frumulínu með stöðugri gegnumflæðisaðferð, en það sé sama frumulína og framleiðsluaðferð og notuð er við framleiðslu á Stelara. Tekjur af sölu á frumlyfinu Stelara í Bandaríkjunum hafi numið um 995 milljörðum króna, sjö milljörðum Bandaríkjadala, á síðasta ári, samkvæmt ársreikningi framleiðandans. Tilkoma líftæknilyfjahliðstæðunnar bjóði upp á sparnað í heilbrigðiskerfinu og fjölgun sjúklinga sem geta nýtt sér úrræðið. Samkvæmt heilbrigðistímaritinu Healthline sé skellusóri algengasta tegund sórasjúkdómsins í Bandaríkjunum, og samkvæmt upplýsingum frá Barnaspítala Fíladelfíu sé hlutdeild sóraliðagigtar um sex prósent hjá börnum með liðagigt. Gott samstarf við Teva Í júní á síðasta ári hafi Alvotech og Teva tilkynnt að þau hefðu náð samkomulagi við framleiðanda frumlyfsins, Johnson & Johnson, um að sala og markaðssetning á Selarsdi gæti hafist 21. febrúar næstkomandi. Fyrsti samstarfssamningur Alvotech og Teva hafi verið undirritaður í ágúst 2020. Þá hafi verið samið um sölu og markaðsetningu fimm líftæknilyfjahliðstæða sem þróaðar verða og framleiddar af Alvotech. Í ágúst á síðasta ári hafi félögin gengið til aukins samstarfs og tvær nýjar líftæknilyfjahliðstæður bæst við samstarfið, auk nýrra útgáfa af tveimur hliðstæðum sem voru hluti af upprunalega samkomulaginu. Alvotech sjái um alla þróun og framleiðslu, en Teva um sölu og markaðssetningu í Bandaríkjunum og nýti þar með mikla reynslu og öflugt sölu- og markaðsnet. Selarsdi sé önnur líftæknilyfjahliðstæðan sem félögin fá markaðsleyfi fyrir. Markaðsleyfi FDA byggi meðal annars á niðurstöðum úr tveimur klínískum rannsóknum. Önnur rannsóknin hafi verið á sjúklingum og þar hafi verið borin saman klínísk virkni, öryggi og ónæmingarverkun Selarsdi og Stelara í sjúklingum með miðlungsmikinn og verulegan viðvarandi skellusóra. Rannsóknin hafi farið fram í fjórum Evrópuríkjum og 581 tekið einstaklingur þátt í henni. Hin rannsóknin hafi borið saman lyfjahvörf, öryggi, þolanleika og ónæmingarverkun Selarsdi og Stelara. Rannsóknin hafi farið fram í Ástralíu og á Nýja Sjálandi með þátttöku 294 heilbrigðra sjálfboðaliða.
Alvotech Lyf Tengdar fréttir Fjárfestar tóku dræmt í skilaboð Alvotech um stóran sölusamning „á næstu vikum“ Skilaboð Alvotech um stöðuna í viðræðum vegna sölusamninga vestanhafs á stuttum kynningarfundi í hádeginu ollu nokkrum vonbrigðum meðal innlendra fjárfesta og féll hlutabréfaverð félagsins skarpt strax að afloknum fundi. Félagið segist vera á „lokastigi“ með að klára samning við einn stærsta söluaðilann í Bandaríkjunum vegna líftæknilyfjahliðstæðunnar Simlandi. 3. apríl 2024 14:19 Alvotech í mótvindi þegar eftirspurn innlendra fjárfesta mettaðist Gæfan hefur snúist hratt gegn hlutabréfafjárfestum í Alvotech sem hafa séð bréfin lækka um þriðjung eftir að félagið náði hinum langþráða áfanga að fá markaðsleyfi í Bandaríkjunum. Enn er beðið eftir að fyrirtækið ljúki stórum sölusamningum vestanhafs og væntingar um innkomu nýrra erlendra fjárfesta á kaupendahliðina hafa ekki gengið eftir. Skarpt verðfall síðustu viðskiptadaga framkallaði veðköll á skuldsetta fjárfesta en á sama tíma og búið er að þurrka út stóran hluta af hækkun ársins hafa erlendir greinendur tekið vel í uppfærða afkomuáætlun Alvotech og hækkað verðmöt sín á félagið. 3. apríl 2024 10:55 Tapaði ríflega hálfum milljarði dala annað árið í röð Tap Alvotech á árinu 2023 nam 551,7 milljónum dollara eða 2,43 dollara tapi á hlut, samanborið við 513,6 milljóna dollara tap á árinu 2022, sem nemur 2,6 dollara tapi á hlut. 551,7 milljónir dollara eru tæplega 75 milljarðar króna á gengi dagsins. 20. mars 2024 21:35 Telja að tekjurnar fari í um 50 milljarða og verði umfram spár greinenda Samkvæmt afkomuáætlun sem stjórnendur Alvotech hafa gefið út er ráðgert að heildartekjur líftæknilyfjafélagsins geti á þessu ári orðið um 400 milljónir Bandaríkjadala, um fjórfalt meira en í fyrra, og mögulega tvöfaldast árið eftir. Þær áætlanir gætu tekið talsverðum breytingum á næstunni þegar Alvotech klárar sölusamninga í Bandaríkjunum en hin nýja tekju- og afkomuspá, sem markaðsaðilar hafa beðið eftir, er engu að síður nokkuð yfir væntingum greinenda. 21. mars 2024 10:53 Mest lesið Uppsagnir hjá Fjársýslunni Viðskipti innlent Opnar stað í anda Kaffi Vest í Fossvoginum Viðskipti innlent „Fyrir löngu orðin að aðstoðarmanninum sem ég leitaði að í tólf ár“ Atvinnulíf Verðbólgan 4,1% og fer upp á milli mánaða Viðskipti innlent Guðný ráðin fræðslustjóri og Kristófer Orri í gjaldeyrismiðlun Viðskipti innlent Kostaði tvo milljarða að selja Íslandsbanka Viðskipti innlent Viðskiptavinurinn alltaf í fókus Samstarf Bein útsending: Framsýn forysta Viðskipti innlent Edda María leiðir stafræna markaðsþjónustu Vettvangs Viðskipti innlent Neyslan mikil og sjá ekki að stýrivextir fari hratt lækkandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Edda María leiðir stafræna markaðsþjónustu Vettvangs Uppsagnir hjá Fjársýslunni Guðný ráðin fræðslustjóri og Kristófer Orri í gjaldeyrismiðlun Kostaði tvo milljarða að selja Íslandsbanka Verðbólgan 4,1% og fer upp á milli mánaða Bein útsending: Framsýn forysta Opnar stað í anda Kaffi Vest í Fossvoginum Neyslan mikil og sjá ekki að stýrivextir fari hratt lækkandi Sexfölduðu veltuna á einu ári Gjaldeyrisforðinn nálægt billjón króna Rúna nýr innkaupastjóri Banana Úr geimskipaútgerð til Faxaflóahafna Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Selur Alvogen í Bandaríkjunum með samruna sem skapar risa á lyfjamarkaði Óvissa á alþjóðavettvangi undirstrikar mikilvægi ríflegs gjaldeyrisforða SVEIT muni afhenda öll gögn og ekki greiða dagsektir SVEIT sleppi ekki við milljónasektir Bætist í eigendahóp Strategíu Guðrún til Landsbankans Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Vélfag stefnir ríkinu Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Sjá meira
Fjárfestar tóku dræmt í skilaboð Alvotech um stóran sölusamning „á næstu vikum“ Skilaboð Alvotech um stöðuna í viðræðum vegna sölusamninga vestanhafs á stuttum kynningarfundi í hádeginu ollu nokkrum vonbrigðum meðal innlendra fjárfesta og féll hlutabréfaverð félagsins skarpt strax að afloknum fundi. Félagið segist vera á „lokastigi“ með að klára samning við einn stærsta söluaðilann í Bandaríkjunum vegna líftæknilyfjahliðstæðunnar Simlandi. 3. apríl 2024 14:19
Alvotech í mótvindi þegar eftirspurn innlendra fjárfesta mettaðist Gæfan hefur snúist hratt gegn hlutabréfafjárfestum í Alvotech sem hafa séð bréfin lækka um þriðjung eftir að félagið náði hinum langþráða áfanga að fá markaðsleyfi í Bandaríkjunum. Enn er beðið eftir að fyrirtækið ljúki stórum sölusamningum vestanhafs og væntingar um innkomu nýrra erlendra fjárfesta á kaupendahliðina hafa ekki gengið eftir. Skarpt verðfall síðustu viðskiptadaga framkallaði veðköll á skuldsetta fjárfesta en á sama tíma og búið er að þurrka út stóran hluta af hækkun ársins hafa erlendir greinendur tekið vel í uppfærða afkomuáætlun Alvotech og hækkað verðmöt sín á félagið. 3. apríl 2024 10:55
Tapaði ríflega hálfum milljarði dala annað árið í röð Tap Alvotech á árinu 2023 nam 551,7 milljónum dollara eða 2,43 dollara tapi á hlut, samanborið við 513,6 milljóna dollara tap á árinu 2022, sem nemur 2,6 dollara tapi á hlut. 551,7 milljónir dollara eru tæplega 75 milljarðar króna á gengi dagsins. 20. mars 2024 21:35
Telja að tekjurnar fari í um 50 milljarða og verði umfram spár greinenda Samkvæmt afkomuáætlun sem stjórnendur Alvotech hafa gefið út er ráðgert að heildartekjur líftæknilyfjafélagsins geti á þessu ári orðið um 400 milljónir Bandaríkjadala, um fjórfalt meira en í fyrra, og mögulega tvöfaldast árið eftir. Þær áætlanir gætu tekið talsverðum breytingum á næstunni þegar Alvotech klárar sölusamninga í Bandaríkjunum en hin nýja tekju- og afkomuspá, sem markaðsaðilar hafa beðið eftir, er engu að síður nokkuð yfir væntingum greinenda. 21. mars 2024 10:53