Íslendingur flýr réttvísina í Kanada Jón Þór Stefánsson skrifar 14. apríl 2024 09:01 Abbotsford í Kanada. Myndin er úr safni. Getty Íslendingur sem er grunaður um brot er varða barnaníðsefni í kanadísku borginni Abbotsford er ekki talinn búa lengur í borginni. Handtökuskipun hefur verið gefin út á hendur honum.
Þetta kemur fram í svari lögreglunnar í Abbotsford við fyrirspurn fréttastofu. Greint var frá máli Íslendingsins í kanadískum fjölmiðlum í nóvember, og í kjölfarið tóku íslenskir fjölmiðlar málið fyrir. Hann er grunaður um þrjú brot. Tvö þeirra varða innflutning eða dreifingu á barnaníðsefni í júní árið 2022 og janúar á síðasta ári. Síðasta brotið varðar vörslu á barnaníðsefni í maí á síðasta ári. Öll eiga að hafa átt sér stað í Abbotsforð. Í svari lögreglunnar vestanhafs við fyrirspurn fréttastofu segir að rannsókn á Íslendingnum hafi hafist í fyrra. Dómstólar hafi fengið gögn málsins og samþykkt að réttarhöld myndu fara fram í því. Þó hefur ekki tekist að hefja dómþingið. Íslendingurinn var handtekinn á meðan rannsóknin stóð yfir, en látinn laus áður en ákæra var gefin út. Síðan, þegar málið átti að vera tekið fyrir í dómstólum, mætti Íslendingurinn ekki fyrir dóm. Lögreglan segist telja að hann haldi sig ekki lengur í Abbotsford. Þá hefur verið gefin út handtökuskipun á hendur honum.
Kanada Erlend sakamál Íslendingar erlendis Mest lesið Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Fleiri fréttir Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins Sjá meira